152. löggjafarþing — 78. fundur,  23. maí 2022.

stuðningur við umsókn Finnlands og Svíþjóðar að NATO.

[15:15]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir skorinorða spurningu og vonast til að geta gefið skorinort svar. Ég styð þá lýðræðislegu niðurstöðu sem þjóðþing Finnlands og Svíþjóðar hafa komist að varðandi það að sækja um aðild að Atlantshafsbandalaginu og sem forsætisráðherra þá starfa ég samkvæmt samþykktri þjóðaröryggisstefnu þar sem kveðið er á um aðild Íslands að NATO. En mín hreyfing, og ég þar með talin, hefur ekki skipt um skoðun á þeirri aðild.