152. löggjafarþing — 78. fundur,  23. maí 2022.

stuðningur við umsókn Finnlands og Svíþjóðar að NATO.

[15:16]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Það er rétt, sem hæstv. ráðherra segir, að nú er meiri hluti fyrir aðild að NATO í þingum Svíþjóðar og Finnlands, en það er líka, og hefur lengi verið, mikill meiri hluti fyrir aðild hér á Alþingi. Er það þá eitthvað sérstakt, að mati hæstv. ráðherra, sem er öðruvísi hjá þeim löndum sem nú vilja ganga þar inn, eftir að hafa verið utan NATO áratugum saman, en hjá okkur? Hér er lýðræðislegur vilji til að vera í NATO og það skiptir máli hvað ríkisstjórnin, og þá sérstaklega sá sem fer fyrir ríkisstjórninni, segir um þá aðild, hvort hann styður hana. Það þætti til að mynda sérkennilegt í Finnlandi eða Svíþjóð ef forsætisráðherrar þessara landa væru andsnúnir aðild en ætluðu engu að síður að láta sig hafa það að sækja um.

Telur hæstv. forsætisráðherra Íslands ekki tímabært að velta því fyrir sér hvort aðstæður nú kalli einfaldlega ekki eftir því að hæstv. ráðherra lýsi yfir stuðningi við aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu?