stuðningur við umsókn Finnlands og Svíþjóðar að NATO.
Herra forseti. Þegar ég tók við því embætti sem ég gegni nú, árið 2017, kom það algerlega skýrt fram að ég myndi starfa samkvæmt samþykktri þjóðaröryggisstefnu á Alþingi, en hún var samþykkt með miklum meiri hluta atkvæða. Ég tel að ég hafi gert það af heilindum æ síðan. Ég hef að sjálfsögðu verið spurð um það á alþjóðavettvangi, ekki síst á vettvangi Atlantshafsbandalagsins, og ég leyfi mér að segja að ég hef engar athugasemdir fengið við það hvernig ég hef gengið þar fram, af heilindum, við samþykkt meiri hluta Alþingis á samþykktri þjóðaröryggisstefnu. Ég tel því að ekkert sérstakt kalli á breytingar í innra starfi Vinstri grænna en flokksráð hreyfingarinnar samþykkti það á sínum tíma, og ítrekaði það þegar við fórum aftur inn í ríkisstjórnarsamstarf, að þau styddu mig í þeirri stefnu að starfa samkvæmt samþykktri þjóðaröryggisstefnu.