endurgreiðslur vegna búsetuskerðinga.
Virðulegur forseti. Fyrir nokkrum vikum staðfesti Hæstiréttur endanlega að þær grimmu búsetuskerðingar sem lengi viðgengust gagnvart lífeyrisþegum almannatrygginga hafi verið ólögmætar. Eðlilega vænta margir þess að fá endurgreitt vegna þessara ólögmætu búsetuskerðinga. Því miður ætlar ríkið ekki að greiða til baka að fullu. Ríkisstjórnin ætlar að hengja sig í það að þrátt fyrir niðurstöðu prófmáls eigi þeir sem ekki fóru í mál lakari rétt. Aðeins stendur til að greiða lífeyrisþegum bætur vegna ólögmætra búsetuskerðinga síðustu fjögur árin en ekki vegna tímabilsins í heild. Vísað er til fyrningarlaga, að ekki sé hægt að ganga lengra. Sú sem höfðaði málið fær greitt lengra aftur í tímann en aðrir. Hér er verið að draga úr vægi prófmáls. Framvegis verður þörf fyrir að allir fari saman í mál jafnvel þótt prófmál myndi duga til þess eins að rjúfa fyrningarfrestinn. Er það í alvöru skárra fyrirkomulag? Ríkisstjórnin er í raun að segja við þá sem urðu fyrir búsetuskerðingum að hver og einn einasti þeirra hefði þurft að fara í mál fyrir áratug síðan til að standa vörð um réttindi sín og prófmál séu liðin tíð. Það er veruleg skerðing á mannréttindum, enda er dómsmál kostnaðarsamt og mikilvægt fyrir tekjulága hópa að staðinn verði vörður um sams konar kröfur með því að sjá til þess að farið verði að prófmáli. Ég minni á að málið var upphaflega höfðað 2016. Héraðsdómur dæmdi fyrirkomulag búsetuskerðinga ólöglegt sumarið 2020 og þeirri niðurstöðu hefur ekki verið hnekkt. Það er því sjálfsögð og eðlileg krafa að miða við fyrningarfrest allra krafna lífeyrisþega hvað þetta varðar, hann rofnaði þegar prófmálið var höfðað og kemur ekki inn að nýju fyrr en dómur féll í Hæstarétti.
Ég spyr því hæstv. forsætisráðherra. Þetta er verst setta fólkið í landinu sem varla á fyrir mat. Það eru tekin af því þrettán ár. Ég get ekki séð að ríkisstjórnin geti varið sig á fjögurra ára reglu vegna þess að ef brotið stendur í 13 ár þá á að borga 13 ár. Annað getur ekki staðist. Ég spyr því hæstv. forsætisráðherra: Ætlar hún að sjá til þess að borga þessu fólki að fullu?