152. löggjafarþing — 78. fundur,  23. maí 2022.

endurgreiðslur vegna búsetuskerðinga.

[15:20]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Dómurinn sem felldur var snerist um heimild til að reikna greiðslur til örorkulífeyrisþega vegna sérstakrar uppbótar á lífeyri vegna framfærslu við lengd búsetu aðila hér á landi. Dómurinn féll eins og hv. þingmaður lýsti og í stuttu máli má segja að hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra, sem fer með þennan málaflokk, hafi breytt reglugerðinni tveimur dögum eftir að dómurinn féll þannig að það var strax brugðist við. Öll munu fá greitt framvegis samkvæmt nýrri reglugerð og án þessara skerðinga. Síðan kynnti félags- og vinnumarkaðsráðherra það í ríkisstjórn að greitt yrði aftur í tímann sem nemur fjórum árum sem er hefðbundinn fyrningarfrestur, þ.e. fjögur ár frá uppkvaðningu dóms og það er unnið að því að greiða þetta aftur í tímann samkvæmt því. Ég skil hv. þingmann þannig að það finnist honum ónóg. En þarna er vitnað til fyrningarfrests eins og hann er skilgreindur og horft á það fordæmi gagnvart öðrum málum. Það er forsenda þess að félags- og vinnumarkaðsráðherra komst að þessari niðurstöðu. Ég held, ef við horfum bara á þetta mál, þá var fenginn þessi úrskurður sem var mikilvægt að fá fram, málsmeðferðartíminn tiltölulega skammur fyrir Hæstarétti, eftir því sem mér er sagt, og brugðist strax við eftir að dómurinn féll, sem er kannski það mikilvægasta í þessu öllu. Ég skil vel að við getum deilt um það hversu langt eigi að fara aftur í tímann en það eru rík málefnaleg rök fyrir þessari ákvörðun hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra.