breyting á reglum um brottvísanir.
Herra forseti. Ríkisstjórnin er í herferð gegn ákveðnum hópum flóttafólks. Þau sýna það reglulega með útlendingafrumvarpi sem er sérstaklega beint gegn þeim sem hafa fengið samþykkta umsókn um alþjóðlega vernd í öðru ríki eins og fólkið sem er að flýja brotin verndarkerfi Grikklands. En það er nákvæmlega ekkert öruggt við að vera með alþjóðlega vernd í Grikklandi. Við vitum að fólk í þeirri stöðu býr á götunni, það er aftast í röðinni þegar kemur að húsnæði, atvinnu, menntun fyrir börnin sín. Þau eru útsett fyrir mismunun og ofbeldi á hverjum einasta degi. Þessu bera íslensk stjórnvöld ábyrgð á í hvert sinn sem þau brottvísa fólki aftur til Grikklands. Þetta eru engin ný tíðindi, annað en mætti halda af orðum forsætisráðherra hér áðan, heldur hefur verið bent á þetta í mörg ár af sérfræðingum og mannréttindasamtökum. Nú ætla þau að halda uppteknum hætti með því að vísa næstum 300 flóttamönnum í þessari stöðu frá Íslandi. Spurður út í þetta Íslandsmet í brottvísunum hefur ráðherra sagt að það sé bara verið að framfylgja lögum. En lög eru verk þingfólks. Hvað getum við gert? Alþingi gæti t.d. breytt lögum á þann hátt að heimiluð verði sérstök meðferð þeirra flóttamanna sem hafa verið föst í tvö ár vegna kórónuveirufaraldurs. Þar eigum við meira að segja fordæmi í frumvarpi sem Katrín Jakobsdóttir, þá þingmaður, lagði fram fyrir kosningar 2017. Ráðherra gæti meira segja bara sett reglugerð sem skilgreinir ástandið vegna heimsfaraldurs kórónuveiru sem sérstakar aðstæður og þar með væri heimilt að veita hæli öllum þeim sem vegna ástandsins ílengdust hér á landi. Það þarf nefnilega bara eitt pennastrik til að grípa inn í. Það þarf ekki meira en eitt pennastrik til að sýna aukna mannúð. Núna þegar dómsmálaráðherra býr sig undir að fylla nokkrar flugvélar af flóttafólki og hefja þannig stærstu og ógeðfelldustu fjöldabrottvísun Íslandssögunnar liggur beinast við að spyrja af hverju. Það er hægt að breyta reglum til að ná utan um þennan hóp. (Forseti hringir.) Það þarf bara eitt pennastrik, það þarf bara pólitískan vilja. (Forseti hringir.) Af hverju er það ekki gert? Er það þetta sem ríkisstjórnin öll sem eitt vilja gera?