152. löggjafarþing — 78. fundur,  23. maí 2022.

breyting á reglum um brottvísanir.

[15:28]
Horfa

dómsmálaráðherra (Jón Gunnarsson) (S):

Virðulegur forseti. Það er mikilvægt að hafa það í huga að verndarkerfið gengur út á samkomulag milli landa um skilgreiningu á fólki á flótta sem er í bráðri hættu af einhverjum ástæðum. Það er regla hjá okkur og flestum öðrum ríkjum Evrópu að hafi fólk fengið vernd í öðru ríki þá sé það ekki að sækja um vernd annars staðar. Við erum því ekkert almennt að skilja okkur frá öðrum ríkjum sem við berum okkur saman við þegar við sendum fólk úr landi. Málsmeðferðin sem hér er stunduð er víðtækari og meiri en gengur og gerist í mörgum löndum í kringum okkur, þar sem aðilar hafa komist að þeirri niðurstöðu að synja viðkomandi um vernd m.a. á þessum forsendum. Það verður að hafa í huga að fyrst gerist þetta á stjórnsýslustigi samkvæmt lögum, gegnum Útlendingastofnun. Fólk getur svo áfrýjað máli sínu til úrskurðarnefndar útlendingamála. Það er eftir slíka málsmeðferð, þar sem fólkið hefur bæði framfærslu og löglærðan talsmann sér við hlið í öllu ferlinu, að fólk er orðið hér í ólögmætri dvöl ef það fer ekki úr landi. Það er alveg rétt að hér hafa verið vel á þriðja hundrað manns, ætli það séu ekki svona 270 manns. Almennt er ástæðan sú að það hefur neitað að fara í svokallað PCR-próf og því hefur ekki verið hægt að framfylgja brottvísun. Þá hefur þessi hópur safnast upp og við því er verið að bregðast núna þegar ríkið er að fella niður þetta eftirlit á landamærum sínum. Alþingi getur vissulega breytt þessu. Alþingi setti okkur reglur og eftir þeim erum við að vinna í öllu ferlinu. Það er þá Alþingis að breyta þeim ef það vill viðhafa önnur vinnubrögð.