breyting á reglum um brottvísanir.
Herra forseti. Það er alltaf jafn stuðandi að heyra hæstv. ráðherra tala eins og það sé eitthvað annarlegt að flóttafólk undirgangist ekki þvingaða læknisrannsókn til að vera vísað út á guð og gaddinn. Hér gerist það enn einu sinni. Auðvitað neitaði fólk að fara í PCR-próf eins og því ber réttur til samkvæmt lögum, lögunum sem ráðherra hvetur okkur til að breyta. Verndarkerfið er sett upp til að tryggja að umsækjendur um alþjóðlega vernd fái einhvers staðar efnislega meðferð sinna umsókna frekar en að þeim sé skákað á milli. Það var ekki sett upp til að vera misnotað eins og gert er af íslenskum stjórnvöldum til að senda fólk til fyrsta viðkomulands og segja bara: Grikkland, dílið þið við þetta. Við nennum því ekki. Grikkland er búið að senda út neyðarkall árum saman því að það ræður ekki við verkefnið. Hvar er samstaðan með grískum stjórnvöldum hjá ráðherra? Í lögunum er líka talað um að fólk eigi að fá virka alþjóðlega vernd þegar því er vísað til annars ríkis. (Forseti hringir.) Ætlar ráðherrann í alvöru að standa hér og segja okkur að verndarkerfið (Forseti hringir.) í Grikklandi geti boðið upp á virka alþjóðlega vernd? (Forseti hringir.) Þá er hann kominn í mótsögn við alla sérfræðinga.