aðbúnaður flóttamanna í Grikklandi.
Herra forseti. Það hefur verið áhugavert að fylgjast með umræðunni hérna í dag, ekki síst svörum hæstv. forsætisráðherra sem afsakar vonda stefnu í málefnum fólks á flótta með því að stefnan sé enn verri í öðrum löndum. Þetta metnaðarleysi er dapurlegt og það er okkur ekki sæmandi. Þá vantar heildstæða stefnu í málaflokknum, er sagt. Hún liggur hins vegar fyrir í þeim frumvörpum sem ríkisstjórnin er að leggja fyrir þingið. Það getur varla verið að það eigi að fá þau samþykkt og herða með því stefnuna til þess eins að taka U-beygju síðar og fikra sig þá fyrst inn á manneskjulegri brautir. Þessir þrír flokkar hafa starfað saman í næstum fimm ár. Afraksturinn úr því samstarfi er sífellt harðari og ómanneskjulegri framkoma gagnvart börnum og fjölskyldum á flótta, eins og við sjáum endurtekið í fjölmiðlum, aftur og aftur. Það stendur til að fleygja nærri 300 einstaklingum úr landi og stór hluti þessa hóps endar á götunni í Grikklandi í aðstæðum sem eru algerlega óboðlegar, eins og við þekkjum.
Það er hægt að flækja þessa mynd og fara í alls konar loftfimleika í rökleiðslunni en í grunninn er þetta ofboðslega einfalt. Við erum flest hér inni fjölskyldufólk, við eigum börn, systkini og foreldra. Spurningarnar sem við þurfum að spyrja okkur eru ofur einfaldlega þessar: Myndum við sjálf vilja láta senda okkur út á guð og gaddinn í Grikklandi þar sem sáralitla aðstoð er að fá? Myndum við sjálf vilja að börnin okkar yrðu rifin upp úr öruggu umhverfi og send í aðstæður þar sem óöryggið er algert og varla húsaskjól að hafa? Nei, við myndum ekki samþykkja það. En hvers vegna í ósköpunum erum við þá tilbúin til að senda annarra manna börn og aðrar fjölskyldur í þær aðstæður sem við myndum aldrei sjálf fara í? Það hvílir engin skylda á okkur að gera það. Það þarf bara pólitískan vilja til að gera það ekki.
Því vil ég spyrja hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra og varaformann VG hvernig hann getur réttlætt það fyrir sjálfum sér að senda annað fólk í aðstæður sem hann myndi aldrei kalla yfir sig og sína?