aðbúnaður flóttamanna í Grikklandi.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Sú umræða sem hér hefur verið í dag hefur gengið út á það að hér sé rekin ein harðasta útlendingastefna á Norðurlöndunum og jafnvel þótt víðar væri leitað. Þá spyr ég mig: Hvers vegna er það sem Íslendingar hafa núna síðan árið 2018, og þá minni ég á þá staðreynd að Katrín Jakobsdóttir tók við sem forsætisráðherra árið 2017, í síauknum mæli tekið á móti fleira og fleira fólki, svo munar hundruðum. Það er jákvætt. En samt þarf maður að sitja undir því að hér sé verið að gera minna en aðrir eða önnur lönd. Tölurnar tala sínu máli, hv. þingmaður. Við getum líka farið ofan í saumana á því hvort hér sé útlendingastefna sem sé harðari eða að verða jafn hörð og er að gerast á Norðurlöndunum, eins og t.d. í Danmörku. Það náttúrlega stenst enga skoðun eins og forsætisráðherra fór ágætlega yfir áðan. Við getum líka horft til þess hvaða breytingar það eru sem íslensk stjórnvöld eru að gera núna með því að færa þjónustu við fólk sem er að leita sér að alþjóðlegri vernd úr dómsmálaráðuneytinu og yfir til félagsmálaráðuneytisins. Það er jákvæð breyting, hv. þingmaður. Það er mjög jákvæð breyting vegna þess að þar með getum við samhæft þjónustuna og við getum tekið betur á móti fólki. Og hvað höfum við verið að gera, þessi ríkisstjórn? Hverju hef ég beitt mér fyrir sem félags- og vinnumarkaðsráðherra, þessa fáu mánuði sem ég hef setið í því embætti? Jú, að fá fleira fólk frá Afganistan, svo dæmi sé tekið, þar sem við erum að taka utan um konur sem eru einstæðar, sem búa við raunveruleika sem við getum ekki einu sinni gert okkur í hugarlund. Það er líka stefna, hv. þingmaður. Ég gæti nefnt hérna að taka sérstaklega á móti viðkvæmum hópum innan þess hóps sem er í Úkraínu, eins og fötluðu fólki og veiku fólki. Ég get ekki setið undir þessum orðum þingmannsins. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)