152. löggjafarþing — 78. fundur,  23. maí 2022.

aðbúnaður flóttamanna í Grikklandi.

[15:37]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Virðulegur forseti. Hæstv. ráðherra þarf bara að sitja undir því sem hér er sagt í ræðustóli Alþingis. Það er hægt að vitna í umsagnir Rauða krossins og mannúðarsamtaka um stefnu ríkisstjórnarinnar í þessum málaflokki. Það er hægt að gera það ítrekað, aftur og aftur og aftur. Það er hægt að vitna í orð hæstv. forsætisráðherra sem sagði fyrir ekki löngu síðan að við ættum alltaf að hlusta eftir því sem Rauði krossinn segir og mannúðarsamtök segja. Þegar koma síðan umsagnir frá þessum aðilum gagnvart málum sem ríkisstjórnin er að leggja fyrir þingið þá er það endalaus falleinkunn. Hæstv. ráðherra svaraði ekki spurningunni, sem sneri að þeim tæplega 300 manns sem stendur til að senda í burtu úr öryggi í óöryggi, úr öryggi í harðræði, hvernig hann getur réttlætt það fyrir sjálfum sér að bjóða þessu fólki upp á aðstæður og kjör sem hann myndi aldrei bjóða sér og sínum upp á. Hvernig getur hann sem ráðherra VG kvittað upp á það að stefnan eigi að vera sú sem mörkuð er af hæstv. dómsmálaráðherra?