skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Frumvarpið felur í sér tillögur um rýmkun á heimildum lífeyrissjóða til fjárfestinga í erlendum gjaldmiðlum. Í frumvarpinu er lagt til að möguleikar lífeyrissjóða til áhættudreifingar fjárfestinga verði auknir og geta þeirra til að standa undir lífeyrisskuldbindingum framtíðarinnar þannig styrkt. Þá er í frumvarpinu lagt til að kveðið verði á um heimild lífeyrissjóða til rafrænnar birtingar á greiðsluyfirlitum iðgjalda sjóðfélaga og upplýsingum um væntanleg lífeyrisréttindi. Gildandi lagaákvæði bindur rafræna birtingu við samþykki sjóðfélaga.
Breytingar er varða gjaldmiðlaáhættu lífeyrissjóða eru eftirfarandi:
1. Að lágmark eigna lífeyrissjóðs í innlendum gjaldmiðli lækki úr 50% í 35% í nokkrum skrefum og að ráðherra verði skylt að leggja mat á þörfina fyrir aðra áfangaskiptingu eigi síðar en árið 2027.
2. Að lífeyrissjóður þurfi ekki að bregðast við ef gjaldmiðlaáhætta hans fer umfram leyfileg mörk sökum breytinga á gengi íslensku krónunnar eða verðhækkana á erlendum eignamörkuðum en á meðan það ástand varir verði honum óheimilt að stofna til nýrra skuldbindinga um kaup á eignum í erlendum gjaldmiðlum.
3. Að lífeyrissjóðum verði gert að eiga eignir í innlendum gjaldmiðli sem jafngilda væntum lífeyrisgreiðslum sameignarhluta næstu þriggja ára.
4. Að ekki verði lengur gerðar kröfur til uppgjörs afleiðusamninga samdægurs á raunvirði og að gert verði skýrara að lífeyrissjóðum sé heimilt að gera afleiðusamninga sem geti myndað skuld á efnahagsreikningi þeirra.
Með tilliti til nýlegrar hækkunar iðgjaldaprósentu, úr 12% í 15,5%, og hvernig líklegt er talið að aldurssamsetning þjóðarinnar þróist mun íslenska lífeyrissjóðakerfið halda áfram að vaxa þar til á sjötta áratug þessarar aldar. Stærra lífeyrissjóðakerfi eykur þrýsting sjóðanna á innlendan fjármálamarkað og ruðningsáhrif í þjóðarbúinu. Þá hafa lífeyrissjóðir sagt að gildandi hámark gjaldmiðlaáhættu setji sumum sjóðum það miklar hömlur í fjárfestingum að örðugt sé að setja og fylgja hagkvæmustu fjárfestingarstefnu fyrir sjóðfélaga. Svo koma megi til móts við þessi sjónarmið er í frumvarpinu lagt til að lögbundið lágmark innlendra eigna lífeyrissjóða verði lækkað úr 50% í 35%, eða um 1,5 prósentustig frá 1. janúar 2024 til 1. janúar 2027 og eftir það lækki lágmarkið um 1 prósentustig 1. janúar ár hvert þar til það nær 35% þann 1. janúar 2036. Ekki var talið ráðlegt að stíga stærri skref í rýmkun að svo stöddu, sérstaklega í ljósi þess að strax við gildistöku frumvarpsins eiga breytingar á gengi og verðhækkanir á erlendum mörkuðum ekki að hafa þau áhrif að lífeyrissjóðum beri að grípa til ráðstafana til að koma gjaldeyrisáhættunni í það horf að hún sé innan lögbundinna viðmiða. Þetta veitir sem sagt viðbótarsvigrúm.
Hins vegar er í frumvarpinu lagt til að ráðherra verði skylt að leggja mat á þörf fyrir breytingar á hlutfallinu og aðlögunartímabilinu eigi síðar en á árinu 2027. Það má segja að þessi regla um skylduna til að leggja mat á þörfina sé til komin vegna ábendinga sem fram komu í umsagnarferli. Hugsunin er þá sú að ef mjög ólík sjónarmið eru uppi um það hvernig staðan muni þróast næstu árin er ekki annað en sjálfsagt að tryggja að lagt verði mat á það innan hæfilegs tíma og það sé lögbundið. Það verður vonandi til þess að betri sátt getur tekist um þessa aðferð, þá leið sem hér er kynnt, þar sem nokkurt tillit hefur þegar verið tekið til umsagna.
Virðulegi forseti. Tillögur frumvarpsins um breytingar á fjárfestingarheimildum lífeyrissjóða eru byggðar á greiningu og skýrslu sem Már Guðmundsson, fyrrverandi seðlabankastjóri, vann að beiðni ráðuneytisins. Skýrslan hefur verið birt opinberlega í samráðsgátt stjórnvalda. Í greinargerð frumvarpsins er fjallað um meginniðurstöður skýrslunnar og einnig eru raktar helstu greiningar annarra sérfræðinga á fjárfestingarþörf lífeyrissjóða á undanförnum árum.
Að þessu sögðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til efnahags- og viðskiptanefndar og til 2. umr. að lokinni þessari umræðu.