152. löggjafarþing — 78. fundur,  23. maí 2022.

skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

568. mál
[17:53]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka ráðherra fyrir framlagningu frumvarpsins sem er nauðsynlegt, og ég tel að margir hafi beðið eftir að það kæmi fram. Nokkrar umsagnir hafa borist um frumvarpið, m.a. frá Landssambandi lífeyrissjóða sem hefur talið að það næði ekki nógu langt, of stutt skref væru stigin og tíminn væri allt of langur, hvort þeir hafa talað um 2027 á móti 2036 og að skrefin þyrftu að vera 2–3% á ári. Ákveðnar ástæður eru gefnar upp fyrir því að Landssamband lífeyrissjóða leggur þetta til. Þær felast auðvitað að stórum hluta í lánsfjárþörf lífeyrissjóðanna til næstu ára og hugsanlegum ruðningsáhrifum sem þörf þeirra til fjárfestinga getur haft á innlendan markað. Ég velti fyrir mér hvort það hafi verið skoðað. Ég geri mér grein fyrir því að búið er að breyta að hluta til prósentunni eins og hún er sett fram í frumvarpinu en ég spyr hvort ráðherra telji nógu langt gengið og hvort ekki hefði verið rétt að hlusta frekar á sjónarmið lífeyrissjóðanna hvað þetta varðar.