skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
Virðulegi forseti. Eins og hv. þingmaður kom inn á þá hefur að nokkru verið tekið tillit til þessara athugasemda eins og rakið er í samráðskafla frumvarpsins. Athugasemdirnar birtust í samráðsgáttinni og frumvarpið hefur tekið breytingum frá því að það var birt þar. Á móti þeim sjónarmiðum sem hv. þingmaður rekur hér er skýrsla sem er undanfari frumvarpssmíðinnar og í henni er rakið að varasamt geti verið að fara of geyst í þessar breytingar. Hér er mikilvægt að hafa í huga hver stærð lífeyrissjóðakerfisins er sem hlutfall af landsframleiðslu. Við erum komin með lífeyrissjóðakerfi núna sem er um tvöföld landsframleiðsla sem er alveg einstakt, ótrúlega jákvætt að sjálfsögðu og ber vitni um framsýni og varúð sem við höfum viljað sýna til lengri tíma þegar um er að ræða skuldbindingar sem við undirgöngumst, hvort sem í hlut á opinber lífeyrissjóður eða aðrir, þannig að tryggja megi góða afkomu fólks sem kemur inn á lífeyrisaldur. Þetta eru aðalsjónarmiðin, að það geti verið of íþyngjandi fyrir þjóðarbúið í heild ef of bratt er farið í breytingar hér. Ég vek aftur athygli á því að það verður lögbundið samkvæmt frumvarpinu að fara yfir þessa stöðu að nokkrum árum liðnum og þá kunna hlutirnir að blasa eitthvað öðruvísi við. Við verðum að bíða og sjá með það. En í millitíðinni höfum við tryggt að reglurnar verða rýmri en upphaflega var lagt upp með.