152. löggjafarþing — 78. fundur,  23. maí 2022.

skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

568. mál
[17:57]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svar hans. Við erum einhvern veginn alltaf að taka tillit til stöðu gjaldmiðilsins á hverjum tíma. Ef lífeyrissjóðunum verður gefið frítt spil til að fara út með fjármuni getur það vissulega haft áhrif á stöðu krónunnar. Það er nú kannski það sem manni sýnist fyrrverandi seðlabankastjóri hafa verið að benda á, að þetta gæti komið á ákveðnu umróti, gæti jafnvel haft þau áhrif að krónan okkar myndi veikjast eins og það er orðað. Við erum að tala um sjóði þeirra sem hafa lagt í þá í gegnum launaða vinnu og mér finnst svolítið kaldranalegt að við þurfum að setja þeim skorður til fjárfestinga þegar talið er að þær geti gagnast sjóðfélögum. Þetta hangir allt á gjaldmiðlinum okkar þannig að auðvitað finnst manni það svolítið sérstakt og skrýtið að lífeyrissjóðirnir skuli vera í þessari stöðu vegna þess að í samanburðarlöndum eru þessar kvaðir ekki til staðar. Svo má líka horfa til þess að það gæti jú tímabundið veikt krónuna á meðan lífeyrissjóðirnir eru að fara út en að sama skapi mun það auðvitað geta styrkt krónuna þegar peningarnir koma síðan inn aftur til að fara að greiða út lífeyri. Þurfum við að hafa svona miklar áhyggjur af því að lífeyrissjóðirnir séu í raun og veru að trufla gengi krónunnar svona mikið?