152. löggjafarþing — 78. fundur,  23. maí 2022.

skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

568. mál
[17:59]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, það er gríðarlega mikilvægt atriði sem við erum að ræða hér, þetta með greiðslujöfnuðinn. Ég hafði ákveðnar áhyggjur af þessu máli fyrir nokkrum árum, á árinu 2017, og óskaði þá eftir því að tekin yrði saman skýrsla um þetta, sem sérfræðingar tóku saman og kom út, ef ég man rétt, snemma árs 2018, þar sem m.a. var verið að leggja mat á þörfina fyrir auknar erlendar fjárfestingar. Á þeim tíma hafði þeirri spurningu verið velt upp hvort við ættum að vera með gólf á erlendar fjárfestingar frekar en þak, fara fram á lágmark frekar en að setja hámark. Í skýrslunni var hvatt til þess að við myndum endurmeta þetta upp úr árinu 2020 eða á árinu 2021, ef ég man rétt, sem við höfum einmitt verið að gera. Við höfum komist að því að vegna góðrar ávöxtunar sjóðanna á undanförnum árum sé þörf fyrir að hækka þetta þak. Við erum ekki farin að vinna með gólf enn þá en við erum að gera talsvert mikla breytingu. Það er nú bara svo margt um þetta segja. Ég held að ef við skoðum hagsmuni lífeyrisþeganna sjálfra þá verði ekki annað sagt en að heilt yfir hafi tekist vel að halda utan um þeirra hagsmuni. Við höfum haft vaxandi lífeyrisréttindi í landinu og eins og ég rakti hér í upphafi er staðan á Íslandi að mörgu leyti mjög öfundsverð í því efni. Íslenska lífeyrissjóðakerfið hefur nýlega fengið mjög góða dóma í samanburði við önnur lönd. Þetta er rétt skref en hérna er verið að velta því upp hvort það sé nógu stórt. Tíminn einn getur leitt það í ljós og við viljum fara aftur yfir málið að nokkrum árum liðnum.