152. löggjafarþing — 78. fundur,  23. maí 2022.

skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

568. mál
[18:02]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir að leggja fram þetta frumvarp. Eins og hv. þm. Guðbrandur Einarsson benti á hefði það kannski átt að koma fram svolítið fyrr. Það hefur nefnilega verið þannig með fjárfestingarumhverfi á Íslandi að gjaldeyrishöftin og það hversu takmarkað lífeyrissjóðir gátu fjárfest utan Íslands gerði það að verkum að lífeyrissjóðirnir áttu orðið eiginlega öll fyrirtækin hér á landi. Það getur bæði verið gott og slæmt.

Eitt sem er slæmt við það er að ef við fengjum annað hrun þá væru lífeyrisréttindin, eða eign lífeyrissjóðanna, allt of tengd við íslenska hagkerfið og það sem væri að gerast innan þess. Því er mikilvægt að opna meira á að geta verið með erlendar eignir en að sjálfsögðu þarf að gera það á þann máta að það hafi ekki neikvæð áhrif á stöðu gjaldmiðilsins. Það kom mér á óvart að hv. þingmaður, sem var hér á undan mér í andsvari, gleymdi að nefna að hægt væri að leysa allt með Evrópusambandinu. Það var nú bara eflaust gleymska.

Það er ánægjulegt að sjá að í frumvarpinu er, eins og hæstv. ráðherra benti á, grein um að eigi síðar en 2027 skuli leggja mat á hvort hægt sé að fara hraðar eða jafnvel hægar í þessi mál. Ég held að það sé einmitt mikilvægt fyrir ráðuneytið að fylgjast vel með því hvaða áhrif þetta hefur og upplýsa þingið um það. Þá gæti þingið verið mjög fljótt að gera breytingar.

Eins og stundum vill gerast datt líka inn í þetta frumvarp ein breyting sem hefur ekkert með gjaldmiðla eða eignir í mismunandi gjaldmiðlum að gera heldur það að gera lífeyrissjóðum heimilt að birta yfirlit og upplýsingar rafrænt á vefsvæði. Þetta er náttúrlega eitthvað sem við þurfum að geta gert með ansi marga hluti nú til dags og það liggur við að það eina sem ég fæ orðið með pósti sé frá lífeyrissjóðnum.

Mig langar samt að hvetja ráðherrann til þess að skoða að eitt af því sem breytti mikið því hvernig lífeyrissjóðir störfuðu og hvernig fólk fékk að velja sér lífeyrissjóði í Bandaríkjunum var að það voru líka gerðar kröfur um að lífeyrissjóðir birtu nánari upplýsingar um hvaða kostnað lífeyrisþegar væru að greiða af sínum greiðslum. Þegar þú leggur inn pening í séreignarsparnað, er þá tekinn einhver kostnaður eða ekki? Þetta kom mér mjög á óvart þegar ég flutti heim eftir að hafa búið erlendis. Ég ætlaði að skoða hvaða lífeyrissjóð ég vildi fara að greiða í. Ég gat hvergi séð kostnaðinn. Ég gat séð hversu mikil ávöxtunin hafði verið á undanförnum árum en ég gat ekki séð hvað ég væri að borga í kostnað. Þó að kannski sé ekki hægt að troða einni málsgrein inn í þetta frumvarp þá held ég að það gæti verið mikil bót fyrir lífeyrisþega að átta sig á því þegar, þeir eru að velja sér lífeyrissjóði, hvaða lífeyrissjóðir taka hærri prósentur. Það nefnilega skiptir máli, sér í lagi fyrir unga fólkið sem er að leggja inn í lífeyrissjóði núna og ætlar kannski að taka það út eftir 30–40 ár, þá skiptir hver prósenta sem tekin er í kostnað ótrúlega máli, eins og við þekkjum sem munum eftir gömlu auglýsingunum í sjónvarpinu um vexti og vaxtavexti. Það er nefnilega þannig að hver prósenta sem tekin er í kostnað getur þýtt milljónir eftir 40 ár.

Það er von mín að þetta frumvarp fari hratt og auðveldlega í gegnum þingið.