152. löggjafarþing — 78. fundur,  23. maí 2022.

skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

568. mál
[18:07]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir sína framsögu. Ég fagna skrefunum sem hér eru stigin til að rýmka heimildir lífeyrissjóða til fjárfestinga erlendis og auka þannig möguleika þeirra til áhættudreifingar. Alþjóðleg eignadreifing er alger frumforsenda þess, sérstaklega fyrir lítið hagkerfi eins og Ísland, að sjóðasöfnunarkerfið skili þeim árangri sem við ætlumst til og að arðsemin af eignum sjóðfélaga sé hámörkuð.

Bandalag háskólamanna bendir á að síðastliðinn áratug hefur innlent eignasafn lífeyrissjóða stækkað að meðaltali þrisvar sinnum hraðar að raunvirði en nemur hagvexti á Íslandi. Það er auðvitað afleiðingin af því sem gerðist hér um og eftir hrun þegar bankarnir hrynja og lífeyrissjóðir stíga inn og verða mjög dóminerandi í íslensku atvinnulífi í skjóli fjármagnshafta. Í skýrslu sinni Áhættudreifing eða einangrun rekja Ásgeir Jónsson og Hersir Sigurgeirsson hvernig fjárfesting lífeyrissjóða í erlendum verðbréfum getur stóraukið vænta ávöxtun þeirra án aukinnar áhættu.

„Hið rétta hlutfall erlendra eigna af eignasafninu er háð ýmsum forsendum en þó svo að gert sé ráð fyrir að innlend verðbréf skili betri ávöxtun en erlend þá er niðurstaðan sú að hlutfall erlendra eigna ætti aldrei að vera undir 30%.

Sé gert ráð fyrir sömu væntu ávöxtun innlendra og erlendra bréfa ætti hlutfallið ekki að vera undir 40%. Sé að auki tekið tillit til sértækra áhættuþátta íslenska verðbréfamarkaðarins, svo sem smæðar hans, má leiða líkur að því að æskilegt hlutfall erlendra eigna lífeyrissjóðanna sé jafnvel enn hærra.“

Ef við skoðum eignasöfn erlendra lífeyrissjóða kemur í ljós að í ríkjum með sambærilegt lífeyriskerfi og á Íslandi er hlutfall erlendra eigna alla jafna í kringum 40% og víða er hlutfallið reyndar miklu hærra. Hjá Norðmönnum er hlutfall erlendra eigna lífeyriskerfisins, að olíusjóðnum meðtöldum, u.þ.b. 93%. Hér á Íslandi, í krónuhagkerfi, hefur leyfilegt hámark erlendra eigna hjá lífeyrissjóðunum verið 50% síðan um aldamótin en samt hefur hlutfall eigna þeirra í erlendum gjaldmiðlum alla jafna verið miklu lægra. Í fyrra voru 36% af eignum lífeyrissjóðanna í erlendum gjaldmiðlum og hjá einstökum sjóðum fór það hæst upp í 45%. Þetta er ekki síst vegna óvissu um gengi íslensku krónunnar þar sem gengisbreytingar geta hæglega fleytt sjóðunum upp að 50% markinu og knúið þá þannig til að lagfæra stöðuna mjög hratt sem kallar þá á óhagstæð viðskipti.

Og hver er það sem bera hallann af þessu? Hverjir bera áhættuna af takmörkuðum fjárfestingarkostum, að öll eggin séu sett í sömu körfuna eða alla vega býsna mörg þeirra? Það eru jú sjóðfélagar. Það er fólkið sem greiðir í lífeyrissjóðina og safnar þar réttindum. Sama fólkið ber hallann af ósanngjörnum skerðingum vegna lífeyristekna. Það er ekki hægt að tala um sjóðsöfnunarkerfi lífeyrisréttinda án þess að minnast á það hvernig aukin uppsöfnun réttinda í lífeyrissjóðum hefur ekki skilað sér með eðlilegum hætti í betri afkomu sjóðfélaganna heldur í allt of ríkum mæli verið nýtt til að spara ríkinu útgjöld til lífeyrisgreiðslna almannatrygginga frá Tryggingastofnun. Eins og við í stjórnarandstöðunni þreytumst ekki á að benda á skerðast greiðslur almannatrygginga einfaldlega við allt of lágar tekjur. Við erum að tala um 25.000 kr. frítekjumark og þetta frítekjumark vegna frestaðra atvinnutekna, þ.e. lífeyrissjóðstekna, er nú einn áttundi af frítekjumarkinu vegna venjulegra atvinnutekna.

Hvað þýðir þessi ólíka meðhöndlun atvinnutekna og lífeyrissjóðstekna fyrir jaðarskattbyrði og fyrir ávinning eldra fólks af viðbótartekjum? Jú, ef við tökum ellilífeyrisþega sem býr einn og er með afar takmörkuð réttindi í lífeyrissjóðum, segjum 50.000 kr., þá eru ráðstöfunartekjurnar 316.495 kr. á mánuði og ef hann vinnur sér inn 200.000 kr. á vinnumarkaði aukast ráðstöfunartekjurnar um 124.100 kr. Hitt verður eftir hjá ríkinu vegna skatta og skerðinga og jaðarskattbyrðin af þessum viðbótartekjum er þannig 38%. Hvað með ellilífeyrisþegann sem getur ekki unnið lengur en á hins vegar miklu meiri réttindi í lífeyrissjóði en sá fyrri? Hver er ávinningur hans af 200.000 kr. viðbótarlífeyrissjóðstekjum, þ.e. ef lífeyrissjóðstekjur hans eru 200.000 eða hærri? Hver er ávinningurinn af því? Það eru 53.487 kr. og jaðarskattbyrðin af þessum tekjum hjá manneskju, sem hefur e.t.v. unnið slítandi störf um langa starfsævi og þarf að setjast í helgan stein heilsu sinnar vegna, er þá 73%. Þarna er ríkið einfaldlega að éta upp ávinninginn af sjóðsöfnuninni.

Mér finnst Stefán Ólafsson félagsfræðiprófessor hafa stillt þessu mjög skynsamlega upp í skýrslu sem hann birti um almannatryggingakerfið í fyrra þar sem hann rekur hvernig umfang skerðinganna hjá TR nemur rúmlega helmingi af því sem þorri lífeyrisþega fær úr lífeyrissjóði. Þetta er ígildi þess að ríkið taki til sín meira en nemur allri ávöxtun lífeyrissjóðanna og ef við teljum tekjuskattinn líka með má segja að ávinningur ríkisins af auknum tekjum sjóðfélaga frá lífeyrissjóðunum nemi á bilinu 70–80%. Þar með er ríkið í raun óbeint orðið helsti lífeyrisþegi lífeyrissjóðanna.

Er þetta það sem vakti fyrir aðilum vinnumarkaðarins og löggjafanum árið 1969 þegar þessu sjóðsöfnunarkerfi var komið á fót í tengslum við kjarasamninga, að losa ríkið í raun undan þessum greiðslum almannatrygginga og færa þær óbeint yfir á lífeyrissjóðina og eigendur þeirra, sjóðfélagana? Ég leyfi mér að efast um það.

En aftur að efnisatriðum þessa frumvarps. Það eru mjög stór og mikilvæg skref sem verið er að stíga hérna til að liðka fyrir aukinni áhættudreifingu en um leið eru þetta varfærnisleg skref. Heimildirnar eru hækkaðar í áföngum með tilliti til greiðslujöfnuðar til að raska ekki efnahagslegum stöðugleika. Mér sýnist hafa verið brugðist ágætlega við athugasemdum sem komu fram í samráðsgáttinni. Frumvarpið mun auðvitað fá dýpri umfjöllun í hv. efnahags- og viðskiptanefnd. Þá berast eflaust fleiri gagnlegar umsagnir. Í grunninn styðjum við í Samfylkingunni þetta mál og fögnum því og viljum greiða fyrir því eins og kostur er að það nái fram að ganga.