skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
Virðulegur forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997. Þarna er um að ræða efnisbreytingar sem skipta miklu máli og hafa þau áhrif að fjárfestingarkostir lífeyrissjóða munu aukast til framtíðar. Það má halda því fram að lífeyrissjóðir hafi alveg frá hruni verið í einhvers konar höftum. Minnumst þess að okkar veiki gjaldmiðill hrundi og það sem hjálpaði til var að lífeyrissjóðir juku fjárfestingar innan lands til að standa með gjaldmiðlinum en ekki síður að standa með fyrirtækjum sem þurftu á því að halda og endurreisa þá mörg þeirra.
Það eru nokkrar veigamiklar breytingar í þessu sem skipta máli. Sú fyrsta er að heimila lífeyrissjóðum að fjárfesta erlendis 65% af eignum sínum en ekki 50% og eins og hefur verið síðan hámark gjaldmiðlaáhættu varð bindandi við ákvörðun um fjárfestingu en ekki vegna virðisbreytinga erlendra eigna lífeyrissjóða. Þetta er stórt og mikið atriði. Þegar maður skoðar umfjöllun um þessi mál hefur verið bent á að margir lífeyrissjóðir hafa verið komnir ansi nálægt því marki sem þeir hafa hreinlega treyst sér til að vera á. Ætli það hafi ekki verið metið þannig að erlendar eignir lífeyrissjóðanna hafi verið í kringum 35% á sama tíma og heimildin var 50%. Einhverjir lífeyrissjóðir hafa verið komnir upp í 45% þannig að þeir eru farnir að nálgast þetta 50% mark verulega. Sveiflur í gengi hafa bara verið til trafala og orsakað það að margir af þessum lífeyrissjóðum hafa hreinlega ekki treyst sér til að ráðast í erlendar fjárfestingar vegna stöðu krónunnar á hverjum tíma. Með þessu sýnist manni að verið sé að lagfæra þetta og það eigi að hjálpa til, þó þannig að alltaf verði tryggt að lífeyrissjóðir eigi a.m.k. þriggja ára væntar lífeyrisgreiðslur innan lands til að mæta þeim lífeyrisgreiðslum sem þeir þurfa að mæta á næstu þremur árum.
Ég held að að flestu leyti sé þetta gott frumvarp en það hafa auðvitað komið við það athugasemdir, sérstaklega frá Landssambandi lífeyrissjóða sem hefur viljað fara hraðar í þessar breytingar, hefur verið að horfa til þess að fá jafnvel að fara með 2–3% á hverju ári í staðinn fyrir 1% eins og var upphaflega. Það var tekið tillit til þessara athugasemda lífeyrissjóðanna og farið upp í 1,5% og í fjögur ár. Lífeyrissjóðirnir óskuðu líka eftir því að fá að hefja þessa göngu á árinu 2023 en ekki 2024 en ekki hefur verið orðið við því. Við erum að sjá lífeyriskerfið okkar vaxa ár frá ári, bæði eru lífeyrissjóðirnir að ávaxta sig og síðan er lífeyrisþegum að fjölga ár frá ári. Ég held að ég hafi séð einhvers staðar að fjárfestingarþörf lífeyrissjóðanna sé í kringum 400 milljarðar á ári og það er ansi stór biti að koma í vinnu.
Þá er spurningin þessi: Hvað getur íslenskur markaður tekið við miklu og hvaða ruðningsáhrif geta fjárfestingar lífeyrissjóðanna haft á markaðinn innan lands? Það er auðvitað eitthvað sem hefur verið bent á af hálfu lífeyrissjóðanna, og ekki bara þeirra heldur margra annarra, m.a. held ég að seðlabankastjóri fyrrverandi hafi bent á það, að of stór hluti lífeyrissjóðanna á innanlandsmarkaði geti haft veruleg áhrif og orsakað, ég vil ekki segja bólu en við sjáum t.d. það sem gerist á markaðinum hér varðandi fasteignaverð. Þegar lífeyrissjóðirnir þurfa að vera að kaupa fyrirtæki og fjárfesta getur það haft þau áhrif að aðrir fjárfestar komast bara ekki að. Það skapar verulegt ójafnvægi á þessum fjárfestingarmarkaði innan lands. Ég held að það sé réttmæt ábending að það geti haft veruleg ruðningsáhrif ef lífeyrissjóðirnir komast ekki út með peningana sína og ekki síður skiptir máli, eins og hér var sagt, að vera ekki alltaf með öll eggin í sömu körfunni.
Manni er uppálagt að reyna að dreifa áhættu og ég held að það sé kannski markmið lífeyrissjóðanna. Þeir eru auðvitað þolinmóðir fjárfestar og þurfa að geta geymt peninga, ekki bara í eitt ár heldur til lengri tíma. Fólk er byrjað að borga í lífeyrissjóði 16 ára og er kannski að borga þar til það er 67 ára og peningarnir þurfa að bíða á meðan og þeir þurfa að fá að ávaxta sig. Lífeyrissjóðirnir þurfa því á hverjum tíma að leita leiða til að hámarka ávöxtun sem hefur reyndar verið æði misjöfn í gegnum tíðina. Það hefur margt tapast. Það tapaðist margt í hruninu en þó þannig að lífeyrissjóðirnir fóru ekki eins illa út úr hruninu og margir aðrir, kannski vegna þess að þeir voru þó umfram marga aðra með fjármuni utan lands. Á þeim tímapunkti högnuðust þeir á gengisfalli krónunnar. Manni finnst það bara svolítið súrt að verið sé að taka stöðu gagnvart krónunni, ekki bara lífeyrissjóðir heldur fjárfestar. Það er hægt að rugga genginu okkar tiltölulega auðveldlega.
Mig langaði bara að nefna það að einhverju sinni vorum að halda baráttufund, verkalýðshreyfingin á Suðurnesjum, í Stapa 1. maí, og á meðan við vorum á fundinum í tvo tíma þá tapaðist hluti kaupmáttar út um gluggann vegna þess að krónan féll. Ástæðan var sú að ónefnt sveitarfélag var að ná sér í peninga til að borga af erlendu láni. Þetta er auðvitað allt svolítið óstöðugt og þyrfti ekki að vera svona. Það er bara þetta umhverfi sem við höfum búið okkur til. Að því sögðu held ég að það sem hér er að gerast sé bara af hinu góða, að lífeyrissjóðir geti haldið áfram að dreifa áhættunni og geti þá hugsanlega nýtt sér þessi 65% að fullu en ekki eins og áður var að þeir þorðu ekki að fara upp í 50% af því að gengisskráning gat haft áhrif á það hvort þeir þyrftu að eiga eða selja. Ég hvet til þess að við látum þetta bara ganga í gegn fljótt og vel og að þetta verði að veruleika innan tíðar.