stuðningur við nýsköpunarfyrirtæki.
Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki, framlenging bráðabirgðaákvæða. Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ákvæðum til bráðabirgða í lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki, nr. 152/2009, og varða breytingarnar framlengingu á bráðabirgðaákvæðum sem höfðu áhrif á skattfrádrátt nýsköpunarfyrirtækja vegna starfsemi þeirra árin 2020 og 2021.
Lagt er til að bráðabirgðaákvæðin verði framlengd með þeim hætti að þau nái til frádráttar frá álögðum tekjuskatti nýsköpunarfyrirtækja árið 2023 vegna rekstrarársins 2022. Ef bráðabirgðaákvæðin verða ekki framlengd mun heildarframlag til skattfrádráttar lækka niður í 20% frá álögðum tekjuskatti og hámarksþak kostnaðar til útreiknings á frádrætti frá álögðum tekjuskatti nýsköpunarfyrirtækja lækka niður í 600 millj. kr. og 900 millj. kr. vegna aðkeyptrar rannsóknar- eða þróunarvinnu.
Þetta þýðir með öðrum orðum að við erum komin hér fram í síðari hluta maímánaðar og fyrirtækin í landinu eru enn ekki komin með vissu fyrir því að rannsóknar- og þróunarvinna sem unnin verður á þessu ári muni lúta sömu reglum og gilt hafa síðustu tvö ár þar sem er aukin skattaleg ívilnun vegna þess. Þetta er sérstakur hvati sem við lögfestum á þeim tíma, sérstakur viðbótarhvati til að tryggja að rannsóknar- og þróunarvinna fari fram á Íslandi. Við teljum rétt að framlengja þessi ákvæði með framlengingu á bráðabirgðaákvæðinu. En þess ber að geta að kerfið í heild sinni er til endurskoðunar, m.a. með samstarfi við OECD og samkvæmt samkomulagi við OECD þá njótum við stuðnings þaðan til þess að taka út heildarvirkni kerfisins.
Hér er sömuleiðis lagt til að ívilnanir bráðabirgðaákvæðanna nái ekki eins langt og áður. Það er gert til að áætlaður kostnaður þeirra sé í samræmi við tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2023–2027 og til að mæta kostnaði vegna hugsanlegrar fjölgunar umsókna til Rannís. Þannig er gert ráð fyrir að frádráttarhlutfall til lítilla og meðalstórra fyrirtækja lækki úr 35 hundraðshlutum í 30 hundraðshluta og hámark kostnaðar til útreiknings á frádrætti frá álögðum tekjuskatti lækki úr 1.100 millj. kr. í 1.000 millj. kr.
Áætlaður kostnaður á árinu 2023, nái frumvarpið fram ganga, er 10,3 milljarðar kr. Að óbreyttu hefði kostnaður varðandi stuðning við nýsköpunarfyrirtæki á árinu 2023 verið 7,9 milljarðar kr. og því felur frumvarpið í sér áætlaða útgjaldaaukningu upp á 2,4 milljarða.
Af þessum tölum má sjá að við erum komin með stuðningskerfi sem losar 10 milljarða og ef við setjum það í samhengi við heildargreiddan tekjuskatt lögaðila á Íslandi þá er hér um að ræða talsvert háa fjárhæð sem krefst þess í raun og veru af okkur að við förum reglulega yfir ávinninginn af þessu og við séum að stilla, ef maður getur orðað það þannig, skrúfurnar allar rétt þannig að við séum að ná tilætluðum árangri. Hann er sá sem ég nefndi, að skapa grundvöll á Íslandi fyrir samkeppnishæft atvinnulíf þar sem rannsóknar- og þróunarstarf þrífst af krafti vegna þess að við trúum því að það geti tryggt mjög verðmæt störf til lengri tíma og útflutningstekjur sömuleiðis og það að Ísland sé einhvers konar miðja eða vagga fjárfestinga á þessu sviði muni gagnast þjóðarbúinu í heild til mjög langs tíma. En þessi hugmynd er samt sem áður að keppa við breytingar sem teygja sig lengra heldur en bara til rannsókna og þróunar. Þess vegna er ég að setja þessa fjárhæð í samhengi við heildargreidda tekjuskatta lögaðila vegna þess að maður þarf líka að spyrja sig: Hvað hefði gerst ef við hefðum varið þetta háum fjárhæðum einfaldlega til lækkunar á þeim sama tekjuskatti? Það gæti talið í nokkrum prósentum sem við gætum lækkað tekjuskatt allra lögaðila fyrir þá fjárhæð sem við erum hér að endurgreiða vegna rannsókna og þróunar. En það er þessi trú okkar á að einmitt þessi hluti starfseminnar, rannsóknar- og þróunarstarfið, geti skapað svo mikil umfram verðmæti til lengri tíma sem réttlæti þá sérstöku löggjöf sem við höfum hér. En við eigum að leyfa okkur að efast og spyrja spurninga og fara yfir þetta og sú vinna stendur einmitt yfir núna. Við erum að stuðla hér með þessu að áframhaldandi vexti í t.d. hugvitsdrifnum greinum sem hafa tekið talsverðan kipp á undanförnum árum. Útflutningstekjur af slíkum greinum hafa stóraukist, störfum fjölgað verulega og mikil tækifæri að því er talið er til frekari vaxtar og að við getum sótt fram þarna samfélaginu öllu til góðs.
Virðulegi forseti. Að þessu sögðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar og til 2. umr. að lokinni þessari umræðu.