152. löggjafarþing — 78. fundur,  23. maí 2022.

stuðningur við nýsköpunarfyrirtæki.

569. mál
[18:32]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir sína framsögu og fagna því hvað hann er áfram um að beita ríkisvaldinu til þess í rauninni að marka atvinnulífinu ákveðna stefnu og hafa áhrif á það hvaða atvinnugreinar það eru helst sem eiga að vaxa og dafna, beita kerfunum og tækjum og tólum ríkisvaldsins til að marka ákveðna atvinnustefnu ef svo má segja. Það er fagnaðarefni.

Mig langar aðeins að bera undir hæstv. ráðherra athugasemdir sem bárust frá Skattinum þegar mjög áþekkt frumvarp var lagt fram á síðasta löggjafarþingi. Þar varar Skatturinn í raun við misnotkun á þessu úrræði og segir að nokkur brögð hafa verið að því að við skattskil hafi almennur rekstrarkostnaður og kostnaður sem telja verður að tilheyri frekar eðlilegum endurbótum á fyrirliggjandi afurð sem viðkomandi fyrirtæki hefur tekjur af verið færður undir kostnað vegna staðfestra nýsköpunarverkefna. Skatturinn telur ástæðu til að benda sérstaklega á að ekki hafa verið sett með lögum sérstök ákvæði um beitingu álags eða annarra refsiviðurlaga til að bregðast við og skapa varnaðaráhrif vegna háttsemi sem ekki samrýmist lögum þessum.

Mig langar bara að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann sjái ástæðu til að bregðast við þessum athugasemdum Skattsins og hvort þörf sé á einhverjum aðgerðum til að girða fyrir misnotkun á þessum annars mikilvægu úrræðum í þágu nýsköpunar.