stuðningur við nýsköpunarfyrirtæki.
Virðulegi forseti. Ég held að við verðum bara að taka þessa ábendingu alvarlega. Það er erfitt að fullyrða neitt um hvort hægt sé að segja sem svo að augljóst sé að þetta þurfi að gera. Við gætum séð fyrir okkur t.d. eitthvert mjög sérhæft tilvik, mjög sérhæfða þjónustu vegna rannsóknarverkefnis. Það kann að vera að tengdur aðili sé einn af örfáum sem komi til greina sem byrgi vegna rannsóknarinnar. Maður gæti séð fyrir sér einhver mjög tæknileg fyrirtæki eins og Íslenska erfðagreiningu eða Alvogen eða hver það kynni að vera. En meira að segja fyrirtæki eins og Elkem á Grundartanga hafa verið að nýta sér þessa löggjöf til þess að fara í rannsóknarverkefni og laða til sín mjög sérhæft starfsfólk, doktora í alls konar raungreinum, til að auka virði framleiðslunnar. Ég skil Skattinn upp að vissu marki, þau vilja að reglurnar séu einfaldar þannig að auðvelt sé að fylgjast með þeim. Það eru ákveðin skilvirknirök. En á hinn bóginn þarf að tryggja að við séum ekki að eyðileggja tilganginn með regluverkinu.