stuðningur við nýsköpunarfyrirtæki.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir það sem hér er kynnt. Þetta er ánægjulegur dagur fyrir okkur sem hér sitjum, bæði í minni hluta og meiri hluta. Hér er verið að leggja fram mál, hvert af öðru, sem almenn sátt ríkir um. Það eru góð mál, jákvæð mál og þetta er ágætistilbreyting frá þrefinu sem hljómar kannski oftar í þessum sal. Ef mál eru góð og þau eru rétt kynnt og jafnvel nokkrum sinnum — dropinn þarf stundum að hola steininn — þá er það mín reynsla að menn leggi við hlustir og bregðist við með jákvæðum hætti.
Ein af ástæðunum fyrir því að ég er ekki mjög óþægur ljár í þúfu meiri hlutans er kannski sú að ég hef átt þátt í að leggja fram mál af svipuðum toga og það mál sem hér er til umræðu, mál sem hefur verið tekið fagnandi og þau gerð að lögum. Annað mál af svipuðum toga var hér til umræðu, um að hækka endurgreiðslu í kvikmyndageiranum úr 10% upp í 35% og gera okkur samkeppnishæfari. Ég lærði það fyrir einhverjum áratug eða svo að manni farnast betur, ef maður vill koma einhverju í gegn, að gera það með frekar kurteislegum og markvissum hætti en spara stóryrðin og fúkyrðin.
Ég man eftir því að fyrir nokkrum áratugum, á miðjum tíunda áratugnum, þá hitti ég á kvikmyndahátíð mann sem fór með dreifingu allra stærstu kvikmyndaveranna í hinni stóru Hollywood. Hann sagði: Við förum með alla okkar dreifingu í gegnum Lúxemborg. Það er hagkvæmast fyrir okkur. Ef þið á Íslandi gætuð t.d. boðið okkur kvartprósents betri díl þá förum við með þetta allt til Íslands. Þetta er bara endurskoðanda- og bókhaldsatriði. Við, verandi hluti af Evrópska efnahagssvæðinu en ekki í Evrópusambandinu sem slíku, höfum kannski ákveðið svigrúm sem við hefðum ekki ella, hvað sem mönnum finnst um siðfræðina í þessu og hinu. Hér er ákveðinn skattafsláttur og hér er ákveðin endurgreiðsluprósenta til hækkunar. Mig langar bara að fá að heyra viðbrögð fjármálaráðherrans við hugmyndum af þessum toga, hvort þær eigi enn upp á pallborðið. Á þessum tíma fór ég ásamt Sigurjóni Sighvatssyni kvikmyndaframleiðanda, vini mínum til margra ára, og við hittum þáverandi fjármálaráðherra, forvera þess hæstvirta sem hér situr, og áttum góðan fund um nákvæmlega þetta mál. Málið var sett í nefnd. Skipaðir voru formenn og varaformenn nefnda. Það var fjölskipuð nefnd og hún tók heilt ár í að gera úttekt á málinu, skilaði síðan inn á ríkisstjórnarborðið hnausþykkri samantekt um kvikmyndagerð á Íslandi almennt sem var alls ekki það sem um var beðið. Þar með gufaði það tækifæri upp. En ég hugsa að það sé enn til staðar.
Sem betur fer er reynsla mín af stjórnvöldum á síðari árum ekki á þennan veg. Þetta er dæmi um fókusleysi og það að skilja ekki kjarna málsins. Ég nefni þetta bara hér af því að ég er ánægður með að menn eru að taka á móti góðum hugmyndum sem hefðu kannski þótt ævintýralegar fyrir 20 árum, að veita svona rabbat eins og verið er að tala um í þessu ágæta frumvarpi.
Mig langar líka að spyrja ráðherrann: Er það ekki rétt hjá mér að til viðbótar við þessi ágætu skilyrði sem verið er að búa íslenskum nýsköpunarfyrirtækjum séu sjóðir upp á allnokkra milljarða sem eru hvatar? Kannski erum við að tala hér um nær 15 milljarða sem við erum að útvega þeim sem vilja leggja á sig þá oft á tíðum tvísýnu vegferð að koma með hugmynd, þróa hana og breyta henni í ábatasaman rekstur og stundum tekst svo bærilega til. Sumir af þeim sjóðum sem ég veit til að starfa í Kaliforníu, bara t.d. í tölvuleikjageiranum, veðja á 100 fyrirtæki á ári og ef tvö eða þrjú af þeim ná einhverjum árangri þá gengur dæmið upp.
Ég er út af fyrir sig mjög hliðhollur anda þeirra laga sem hér er verið að fjalla um og styð þau heils hugar eins og ég held að við gerum flest í þessum sal og á þessu þingi. En það voru þessir tveir punktar sem ég vildi bara rétt fá örstutt viðbrögð við og mun ekki nýta frekar þær níu og hálfu mínútu sem ég hef til að masa hér út í eitt og skipa mér í hóp biðla um ræðukóngahlutverk Alþingis. Ég er ekki þar.