stuðningur við nýsköpunarfyrirtæki.
Virðulegi forseti. Ég skal reyna að bregðast við þessu. Jú, ég held að það mál sem við erum að ræða hér sé dæmi um viðleitni af þeim toga sem hv. þingmaður var að kalla eftir á sínum tíma. Hér fyrr í dag mælti menningar- og viðskiptaráðherra sömuleiðis fyrir endurgreiðslufrumvarpi vegna framleiðslu stærri verkefna í kvikmyndageiranum þar sem að sumu leyti var verið að nota sömu rök og hér eru fram komin þó að það verkefni sé samt sem áður nokkuð annars eðlis.
Það er alveg rétt skilið hjá hv. þingmanni að til viðbótar við þennan rétt til endurgreiðslu þá erum við með samkeppnissjóði þar sem hægt er að sækja um stuðning. Það eru helst Rannsóknasjóður, sem er vegna grunnrannsóknanna, og síðan Tækniþróunarsjóður þegar verkefnin eru komin aðeins á legg. Svo má bæta því við hér að nýlega höfum við stigið frekari skref, eins og með stofnun Kríu og nú síðast Lóu. Þetta eru sjóðir sem eru byggðir upp af opinberu fé til að tryggja að nægjanlegt áhættufjármagn sé til staðar fyrir fyrirtæki sem eru í vexti. Ég er sérstaklega hrifinn af uppsetningunni á Kríu vegna þess að þar vorum við ekki að takast á við það verkefni að byggja upp greiningargetu og sérfræðiþekkingu í stjórnkerfinu heldur sögðum sem svo að ef fagsfjárfestarnir hefðu melt málið og tekið ákvörðun um að fjárfesta þá væri sjóðurinn tilbúinn til að fjárfesta með.