stuðningur við nýsköpunarfyrirtæki.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég myndi gjarnan vilja vita, ef hann hefur það millum eyrna sér, hvað þessir sjóðir eru að heildarupphæð, sirkabát, Nýsköpunarsjóður og það sem hann nefndi hérna, fyrir þennan geira. Ég held að við getum verið stolt af þeirri upphæð þeim mun hærri sem hún er. Ég spyr sömuleiðis hvort hugmyndir á borð við þær sem við Sigurjón Sighvatsson lögðum fyrir forvera hans á miðjum tíunda áratugnum ættu yfir höfuð upp á pallborðið hér á árinu 2022 eða hvort eitthvað hefti okkur í slíkum tilboðum, eins og þjóðirnar eru yfirleitt í til að laða að sér verkefni í kvikmyndum og öðru. Hvort sérstök skattprósenta á dreifingu á erlendum kvikmyndum og sjónvarpsefni — ef því yrði vísað hingað gætum við þá stöðu okkar í Evrópu vegna tekið við slíku? Þó að Lúxemborg geri það, gætum við það? Það eru í rauninni þessar tvær spurningar sem mig langar að fá viðbrögð við ef hæstv. ráðherra hefur þau á reiðum höndum.