152. löggjafarþing — 78. fundur,  23. maí 2022.

stuðningur við nýsköpunarfyrirtæki.

569. mál
[18:49]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Við höfum verið að stækka þessa sjóði töluvert mikið og þeir hafa verið að sigla í áttina að 10 milljörðum ef ég man rétt. Á vegum Vísinda- og tækniráðs hefur á undanförnum árum töluvert verið einblínt á þennan geira hagkerfisins. Við vorum með stefnumörkun þar sem gekk út á að við værum með um 3% af landsframleiðslu sem færi í verkefni af þessum toga, nýsköpunarverkefni. Það er óhætt að segja að eftir því sem hagkerfið tók við sér og hlutabréfamarkaðir tóku við sér og auknar ívilnanir voru innleiddar og frekari stuðningur veittur í gegnum þessa sjóði hefur heildarfjárfestingin í hagkerfinu sömuleiðis vaxið mjög mikið. Við erum komin að því að geta sagt að við séum að uppfylla þessi langtímamarkmið okkar um stuðning við þess háttar starf í landinu okkar eða í hagkerfinu.

En hvort við eigum enn inni ósótt mörg verkefni eins og það verkefni sem hv. þingmaður nefnir varðandi dreifinguna, ég held að það geti vel verið. Í raun og veru snýst þetta á endanum bara um það að við séum tilbúin að gera það sem þarf til að tryggja að við séum samkeppnishæf. En það er líka mjög mikil samkeppni milli landa og svæða og sums staðar sýnist mér að menn séu farnir að ganga fulllangt. Ég nefni sem dæmi að á Írlandi fóru menn þá leiðina að fella niður helminginn af tekjuskatti fyrir fyrirtæki af þessum toga og voru þá komnir niður í 6,25% tekjuskatt en almenni skatturinn hafði verið 11,5%.