stuðningur við nýsköpunarfyrirtæki.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir sitt síðara andsvar. Ég átti ekki von á því að ég ætti eitt inni sjálfur en ég mun ekki skorast undan því. Ég vil bara þakka fyrir jákvæð viðbrögð við hugmyndinni sem forveri hans missti fókusinn á fyrir þetta mörgum árum, á tíunda áratugnum. Við skulum taka upp þann þráð aftur af því að við höfum til þess fulla burði. Ég er, eins og ég hef áður sagt úr þessum stóli, upptekinn af því að við fjölgum tekjustofnum ríkissjóðs til þess að eiga örugglega fyrir því að allir hafi nóg til hnífs og skeiðar og að hugmyndin um 350.000 kr. skatta- og skerðingarlaust sem við í Flokki fólksins teljum að sé lágmark til þess að komast af í þessu góða en dýra landi okkar geti orðið að veruleika. Allar hugmyndir sem gætu hjálpað okkur í þessa átt, þeim skal ég beina til hæstv. ráðherra í von um að þeim verði vel tekið og fagnandi.