152. löggjafarþing — 78. fundur,  23. maí 2022.

stuðningur við nýsköpunarfyrirtæki.

569. mál
[19:29]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegi forseti. Hér er frumvarp um framlengingu bráðabirgðaákvæða í tengslum við stuðning við nýsköpunarfyrirtæki. Í samtölum mínum við fólk úr nýsköpunargeiranum hefur það einmitt rætt mjög mikið hversu mikilvæg þessi leið til að styðja við nýsköpunarfyrirtækin er. Eitt af því sem þau hafa nefnt í því sambandi er að flækjustigið við að fá þetta megi ekki vera of mikið. Á sama tíma hefur verið bent á, t.d. af Skattinum, að mögulega séu glufur í löggjöfinni og möguleiki á því að misnota þetta. Að sjálfsögðu þarf að vinna vel í því að tryggja bæði gagnsæi og eftirlit í öllum stuðningi við fyrirtæki, ekki bara í þessu ákveðna frumvarpi, og t.d. mikilvægt að skoðað sé hvort viðurlög verði við því að fylgja ekki eftir, gefa rangar upplýsingar eða eitthvað slíkt.

Af hverju erum við að leggja í fjárfestingar eins og er hér, þ.e. að greiða til baka ákveðið hlutfall kostnaðar við rannsóknir og þróun? Jú, það er nefnilega þannig að það að styðja við nýsköpunarfyrirtæki á þennan máta hjálpar til við að gera Ísland að samkeppnishæfu landi þegar kemur að nýsköpun. Forsvarsmenn nýsköpunarfyrirtækja hafa sagt það hreint og beint út við mig að ef þessi stuðningur væri ekki til staðar væri stærsti hluti þeirra starfsemi á erlendri grund. Það er nákvæmlega það sem við viljum ekki að gerist. Við viljum byggja upp umhverfi sem styður við nýsköpun, sem gerir það að verkum að að hér sé verið að skapa tækifæri, að hér sé verið að búa til tækni sem í sumum tilfellum getur jafnvel orðið til að bjarga heiminum. Fjárfestingin sem það er að endurgreiða þennan kostnað er fjárfesting sem skilar sér margfalt til baka.

Við ræddum fyrr í dag um endurgreiðslu á kostnaði við gerð kvikmynda. Þetta er bara mjög keimlíkt. Kannski er munurinn að einhverju leyti sá að þessi fjárfesting dregur ekki endilega að sér ferðamenn í sama mæli og falleg náttúra gerir í bíómyndum eða sjónvarpsþáttum, en hún laðar til sín starfsfólk alls staðar að úr heiminum, úr tæknigeiranum, sem býr til tækifæri og skapar ákveðin tengsl hingað til Íslands sem geta gert það að verkum að hér verði enn blómlegri nýsköpun, sem er akkúrat það sem við viljum sjá. Eins og hv. þm. Jakob Frímann Magnússon benti á áðan er ekki nóg að vera bara með örfáar stoðir í okkar hagkerfi. Hinar skapandi greinar, nýsköpun, kvikmyndagerð og ýmislegt annað, eru mikilvægar, líka til að brjóta upp það sem gerist ef einhverjar af hinum stoðunum hrynja.

Við getum séð hvernig fjármálageirinn var orðinn ákveðin stoð fyrir um 14 árum og hrundi svo allur á einni nóttu. (Gripið fram í: Túristar.) Við höfum séð túrismann hrynja vegna heimsfaraldurs. Við getum jafnvel farið að sjá að eitthvað fari að draga úr þeim iðnaði sem við höfum byggt upp hér vegna umhverfis- og loftslagsmála. Það er því mikilvægt að við séum með margvíslegar stoðir undir hagkerfnu okkar og þetta er svo sannarlega ein leið til að tryggja það og til að vinna mjög náið að því að byggja upp hagkerfi sem að hluta til byggir á þessari nýsköpun.

Eins og hæstv. fjármálaráðherra benti á er þetta bráðabirgðaákvæði sem kom inn í tengslum við heimsfaraldur og er verið að framlengja alla vega í eitt ár í viðbót. Það var ánægjulegt að heyra að hæstv. ráðherra er að láta vinna nýja skýrslu í samvinnu við OECD um það hvernig hægt er að hafa þetta stuðningsumhverfi til langs tíma. Það er mikilvægt fyrir kvikmyndafyrirtækin sem eru að búa til sjónvarpsþætti, margar seríur af þeim, að geta horft til framtíðar, að ákveðin skilyrði séu ekki bara ár og ár í senn, og það sama gildir fyrir nýsköpunarfyrirtækin, að þau geti horft fram í tímann. Það hefur sýnt sig í þeim löndum sem veita stuðning eins og er hér — og hinn stuðninginn líka sem hæstv. ráðherra og hv. þingmaður ræddu um áðan í formi styrkja og annarra sjóða — að það er mikilvægt að þetta sé eitthvað sem er til lengri tíma svo að hægt sé að treysta á að það sé til staðar.

Það er von mín að þegar farið verður að skoða þetta til lengri tíma sé horft dálítið á að það skiptir máli hvar á sínu þróunarstigi nýsköpunarfyrirtækin eru. Það að styðja við nýsköpun í fyrirtækjum sem eru jafnvel búin að vera til í 40 ár, eða jafnvel 20 ár, er allt önnur nýsköpun og allt annar stuðningur en nýsköpunarfyrirtæki sem er nokkurra ára gamalt þarf. Það þarf að horfa vel á það. Það var dálítið gagnrýnt við þetta ákveðna tæki að að hluta til væri það kannski til að styðja við fyrirtæki sem væru búin að vera í rekstri í áratugi. En það þarf líka módel fyrir þau og það þarf að passa að skoða það mjög vel.

Hæstv. ráðherra lagði fram þá spurningu hvort kannski hefði verið betra að einfaldlega lækka tekjuskatt á alla lögaðila í stað þess að vera með svona endurgreiðsluákvæði. Mig langar að hvetja ráðherra til að horfa ekki á það vegna þess að það sem sérfræðingar á þessu sviði hafa fundið er nákvæmlega það að það að vera með sérstök prógrömm fyrir nýsköpunarfyrirtækin hefur allt önnur áhrif og betri vaxtaráhrif á nýsköpunina en endilega að lækka tekjuskattinn á öll fyrirtæki.

Það er líka von mín að í haust, þegar skýrslan sem OECD og aðrir eru að vinna í kemur fram, þá verði farið í djúpt samráð við nýsköpunarsamfélagið á Íslandi til að tryggja að þær hugmyndir sem koma fram í skýrslunni eigi vel við og það sé góður sáttmáli um það milli ríkis og nýsköpunarsamfélagsins hvernig við getum unnið saman að því að tryggja að hér byggjum við upp nýsköpunarlandið Ísland.