stuðningur við nýsköpunarfyrirtæki.
Virðulegur forseti. Ég ætla nú ekki að vera orðmargur hér varðandi þetta frumvarp. Mig langar þó að koma hingað upp og lýsa yfir ánægju minni með að það skuli vera komið fram. Þetta er auðvitað hlutur sem við þurfum að huga vel að. Að mörgu leyti höfum við verið eftirbátar margra annarra samanburðarlanda hvað þetta varðar. Eins og hér hefur verið bent á ríkir verulega hörð samkeppni um nýsköpunarfyrirtæki og mörg lönd hafa í gegnum tíðina keppst um að búa til það umhverfi sem getur laðað að slík fyrirtæki og veitt þeim tækifæri til að vaxa. Við þurfum auðvitað bara að mæta þessu. Rétt eins og við vorum í dag að fjalla um endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar þá skiptir þessi geiri ekki síður miklu máli og jafnvel meira máli ef út í það er farið.
Mig langar bara að minna á að fyrirtæki eins og Össur og Marel, sem urðu hér til, hafa skapað mikil verðmæti en þau nutu kannski ekki sérstakra ívilnana af hálfu ríkisins. Við erum með sprota hér um allt samfélag sem þurfa að fá umhverfi til að vaxa. Þess vegna er nauðsynlegt að við hlúum að slíkum sprotum með því að styðja við þá, alla vega á meðan þeir eru að komast af stað.
Það er svo sem ekki mikið um frumvarpið að segja að öðru leyti en að þarna er bara verið að framlengja þetta bráðabirgðaákvæði, sem var sett um þessa starfsemi á árunum 2020–2021, og ákveða þá fjármuni sem í þetta eiga að fara, sem ættu þá að vera einhverjir rúmir 10 milljarðar nái þetta frumvarp fram að ganga en hefði annars farið niður í rúma 7 ef frumvarpið hefði ekki verið tekið til meðferðar.
Það vekur reyndar athygli mína að frumvarpið hafi ekki farið í samráðsgátt. Ég veit ekki alveg hvers vegna þessi flýtir þurfti að vera vegna þessa frumvarps en gott og vel, það er búið að eiga sér stað samráð, eins og segir í frumvarpinu, við háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið og Rannís við vinnslu þess. Einhverjir hafa því haft eitthvað um þetta frumvarp að segja.
Við erum með fullt af tækifærum til að nýta þær afurðir sem eru til staðar hér, þær auðlindir sem eru til staðar. Við vitum nú bara að í gamla daga vildum við ekki borða þorsk, við vildum bara borða ýsu og settum þorskinn okkar annaðhvort í saltfisk eða skreið til Nígeríu. En síðan hefur margt breyst og við erum auðvitað bara orðin þekkt fyrir nýtingu á sjávarafurðum okkar langt umfram það sem mörg önnur lönd hafa gert. Það er full þörf á því að skoða möguleikana á því að nýta þá náttúruauðlind enn frekar með alls konar aukaafurðum. Það eru margir farnir af stað í þá vegferð að búa til bætiefni, m.a. úr einhverju sem menn settu bara í bræðslu í gamla daga. Það skiptir miklu máli að slíkir aðilar fái tækifæri til að sinna slíku starfi með einhvers konar ívilnunum.
Ég vil t.d. nefna mjög framsækið verkefni eins og Sjávarklasann sem hefur verið að vinna að þessum málum. Það skiptir gríðarlegu máli að þarna verði til þekking og aðstaða og auðvitað bara fjármagn þannig að þessi fyrirtæki geti þá sinnt því sem þau eru best í, að þróa hlutina og vinna með þá í stað þess að þurfa að hafa fjárhagsáhyggjur frá degi til dags. Eitt er nú fyrirtæki sem heitir Carbfix sem við erum mjög stolt af að sjá verða að veruleika, að til séu að verða lausnir þannig að við getum farið að eyða þeirri mengun sem við búum til. Þarna eru alls konar tækifæri og þess vegna held ég að við keyrum þetta frumvarp í gegn eins fljótt og hægt er.
En við verðum að vera minnug þess að við breytum ekki svona hlutum bara í einu vetfangi. Þetta þarf að vera langtímamarkmið. Við þurfum að halda áfram að vinna með þetta og veita slíkum fyrirtækjum einhverja möguleika til að búa til stöðugleika í sínum rekstri. Það hlýtur að vera skelfilegt fyrir marga þessa aðila sem eru að reyna að vinna að nýsköpun að þurfa að hafa áhyggjur af því hvort þeir þurfi að loka fyrirtækinu sínu á morgun eða ekki. Stöðugleiki í þessu — við þurfum að hugsa þetta til langtíma. Margir aðilar sem fjárfesta í nýsköpun hafa auðvitað það þolinmóða fjármagn sem þarf í slíkt. Það er nauðsynlegt að aukið þolinmótt fjármagn fáist til nýsköpunar og þar getur ríkisvaldið spilað stóra rullu.