152. löggjafarþing — 78. fundur,  23. maí 2022.

landamæri.

536. mál
[22:05]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Guðbrandi Einarssyni fyrir ágætisræðu. Hann fjallaði töluvert mikið um samspilið milli þessa frumvarps og útlendingalaga og þeirrar umræðu sem á sér stað núna um brottvikningu. Mig langar að spyrja hann tveggja stuttra spurninga í sitthvoru andsvarinu, ég ætla þá að gefa honum tíma til að svara. Hann talaði um það þegar verið er að mismuna hópum og það er auðvitað hryllilegt ef slíkt er praktíserað. Nú sjáum við að íslensk stjórnvöld hafa komið mjög myndarlega að málum varðandi flóttamenn frá Úkraínu og aðstoð vegna hörmulegs stríðs þar. Einnig er talað um að aðstoða Moldóvu, sem er nágrannaríki Úkraínu og er að bugast vegna mikils straums flóttamanna beint yfir landamærin, af því að eins og hv. þingmaður talaði um þá rær maður ekki á bát frá Miðausturlöndum til Íslands. Grikkland hefur raunar í mörg ár kvartað yfir því og óskað eftir aðstoð vegna mikils álags þar vegna þess að landfræðilega liggur Grikkland þannig að fólk sækir þangað.

Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann telji ekki vera ákveðinn tvískinnung í því að við skulum ekki einmitt líta til stöðunnar í Grikklandi og segja: Jú, við þurfum að taka meiri ábyrgð alveg eins og við gerum, sem betur fer, gagnvart Moldóvu og flóttamönnum frá Úkraínu?