152. löggjafarþing — 79. fundur,  24. maí 2022.

störf þingsins.

[13:33]
Horfa

Bjarni Jónsson (Vg):

Virðulegi forseti. Í gær barst svar frá heilbrigðisráðherra við fyrirspurn minni um skort á læknum og öðru heilbrigðisstarfsfólki á landsbyggðinni. Margt ágætt kemur þar fram en einnig staðfestist ráðaleysi gagnvart því hvernig eigi að bregðast við ástandinu og það strax. Það verður að leggja aukinn þunga í grunnþjónustuna, manna stöðugildi lækna og annarra starfsstétta og tryggja íbúum landsbyggðarinnar þá grunnþjónustu og búsetuöryggi sem ríkið skal veita samkvæmt lögum. Vandinn er margþættur. Eitt er hænuprikakerfið þar sem stjórnendur og yfirmenn á Landspítalanum eru efstir en starfsfólk í dreifðum byggðum neðst og starfsskilyrði ekki endilega eins og best verður á kosið fyrir unga lækna, hjúkrunarfræðinga og fjölskyldur þeirra. Í þannig kerfi er þyngra að ráða og halda starfsfólki. Eitt af því sem þarf að gera er að skapa frekari tækifæri, læknis- og hjúkrunarmenntaðs fólks á landsbyggðinni, og þá ekki bara á stærstu stöðunum, til að þróa sig áfram og taka þátt í faglegu starfi á landsvísu og víðar á sínum sérsviðum. Þannig verða störf á þessum stöðum enn eftirsóknarverðari. Í krafti almannahagsmuna og byggðajafnréttis er enn fremur nauðsynlegt að beita tiltækum ívilnunum til að jafna hlut staða úti um landsbyggðina sem góðs valkosts fólks sem er að hefja starfsferil á sínum sviðum. Vel fjármagnaðar aðgerðir í þessum málaflokki ættu að vera einn af hornsteinum stefnumótandi byggðaáætlunar en eru það ekki. Því þarf að breyta. Vert er að benda á að sum lönd, eins og Ástralía og Kanada, hafa farið út í það að byggja upp dreifbýlislækningar sem sérstaka faggrein og jafnvel sérstaka stofnun á því sviði. Það getur verið skilvirkari leið að opna leiðir fyrir íslenska nemendur að fara í nám þar fremur en að treysta á að HÍ og Landspítali taki betur við sér eða samhliða. Við núverandi aðstæður og ástand verður ekki unað. Það þarf aðgerðir strax.