störf þingsins.
Virðulegur forseti. Samkvæmt fram komnum upplýsingum greip Seðlabanki Íslands inn í á gjaldeyrismarkaði síðastliðinn föstudag og keypti gjaldeyri fyrir rúmar 800 millj. kr. í þeim tilgangi að koma í veg fyrir styrkingu krónunnar. Það liggur fyrir að styrking krónunnar myndi leiða til lækkunar á verði innfluttrar vöru og ætti því að draga úr verðbólgu. Í stað þess að leyfa krónunni að styrkjast til hagsbóta fyrir almenning velur Seðlabankinn að halda krónunni veikri og hækka vexti í stað þess að reyna að draga úr verðbólguþrýstingi. Maður hlýtur að spyrja hvort verið sé að fara rétta leið til að reyna að ná stöðugleika sem er bæði mikilvægur og eftirsóknarverður fyrir íslenskan almenning. Gengisstyrking sem slík ætti að auðvelda Seðlabankanum að ná markmiðum sínum um 2,5% verðbólgu. Sú leið sem Seðlabankinn er að fara, þ.e. að beita stýrivaxtahækkunum í stað þess að leyfa krónunni að styrkjast, hefur jafnframt í för með sér að vaxtamunur við útlönd er að aukast og það mun að endingu auka innflæði fjármagns sem aftur ætti að gera það að verkum að krónan mun halda áfram að styrkjast. Einhverra hluta vegna á maður erfitt með að skilja hvers vegna þessi leið er valin, að hækka stýrivexti og koma í veg fyrir að krónan styrkist. Það að leyfa krónunni að styrkjast ætti að auðvelda Seðlabankanum að rækja hlutverk sitt og skyldu um að halda verðbólgunni í skefjum og auðvelda íslenskum almenningi lífið. Seðlabankinn velur hins vegar aðrar leiðir og maður hlýtur að spyrja hvort Seðlabankinn sé í liði með íslenskum almenningi.