152. löggjafarþing — 79. fundur,  24. maí 2022.

störf þingsins.

[13:49]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Tæplega 300 umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga yfir höfði sér brottvísun frá Íslandi á næstu dögum. Á Rás 2 í morgun tjáði hæstv. dómsmálaráðherra sig á þann hátt að annaðhvort hefur hann afskaplega takmarkaða þekkingu á málaflokknum sem hér um ræðir eða hann fór viljandi með rangt mál. Í fyrsta lagi hélt ráðherrann því fram að íslensk stjórnvöld hefðu litlar heimildir til að veita þessum einstaklingum vernd vegna alþjóðlegs samstarfs, um þessi mál gilti eitthvert regluverk. Hann nefndi þó ekki hvaða regluverk tjóðraði hendur íslenskra stjórnvalda svo kirfilega niður, enda er ekkert alþjóðlegt eða evrópskt regluverk sem bannar stjórnvöldum hér á landi að taka við fólki á flótta. Í öðru lagi sagðist ráðherrann ekki getað farið inn í ákveðin mál og breytt leikreglunum, það myndi skapa lagalega óvissu og mikinn óstöðugleika. Þetta er áhugaverð afstaða hjá ráðherranum sem sjálfur hefur lagt fram frumvarp til breytinga á útlendingalögum og ætlar sér að breyta leikreglunum. Þá hefur hæstv. dómsmálaráðherra heimild til að breyta reglugerð um útlendinga eins og allir vita. Í þriðja lagi segir hæstv. ráðherra að fólk með alþjóðlega vernd í Grikklandi búi við sömu skilyrði og Grikkir. Það er alrangt, hæstv. forseti. Það hefur kærunefnd útlendingamála margsinnis staðfest í úrskurðum sínum. Það ríkja aðgangshindranir að grunnþjónustu, velferðarþjónustu á Grikklandi og lagalegum réttindum fólks er ekki fullnægt. Grísk löggjöf mismunar flóttafólki og þetta á hæstv. dómsmálaráðherra að vita. Útlendingastofnun, sem fer með þennan mikilvæga málaflokk, heyrir undir dómsmálaráðherra og hann hefur heimildir til að gefa stofnuninni fyrirmæli um að taka umsóknir fólks sem hingað komu á ákveðnu tímabili á meðan kórónuveirufaraldurinn stóð yfir til efnislegrar meðferðar í ljósi sérstakra ástæðna. Ráðherrann hefur nefnilega valdið í þessum málaflokki.