störf þingsins.
Forseti. Samskipti og samstarf Norðurlandanna, m.a. á sviði Norðurlandaráðs, hafa eðlilega litast mjög undanfarið af framgöngu Rússa, af innrás þeirra í Úkraínu og hótunum í garð annarra Evrópulanda. Það má nefna endurskoðuð samskipti við Rússland, aukin tengsl við Eystrasaltsríkin og svo auðvitað áherslu á varnarmál, jafnt varnarmál einstakra landa sem varnarmál Norðurlanda í heild.
Nú hafa bæði Svíar og Finnar sótt formlega um aðild að Atlantshafsbandalaginu. Það má segja að þessar tvær þjóðir hafi verið með nokkurs konar aukaaðild að bandalaginu líkt og Ísland og Noregur hafa haft að Evrópusambandinu í gegnum EES-samninginn. Svíar og Finnar hafa þannig tekið þátt í æfingum NATO og átt samráð en hvorki komið að ákvarðanatöku né notið að fullu þess öryggis sem aðildin veitir. Nú þegar á reynir liggur fyrir að þessi ríki velja frekar að stíga skrefið til fulls og tryggja sér sæti við borðið en að halda áfram hálfgildingsþátttöku. Þau vilja vera fullgildir þátttakendur, leggja sitt til málanna og njóta kosta aðildar til fulls. Það má læra af þessu, herra forseti.
Það er ljóst að NATO-aðild Svía og Finna mun breyta ákveðnu jafnvægi sem ríkt hefur í samskiptum Norðurlandanna þar sem þessar þjóðir hafa verið innan Evrópusambandsins og utan NATO en Ísland og Noregur innan NATO en utan Evrópusambandsins. Eingöngu Danmörk hefur verið fullgildur þátttakandi á báðum vígstöðvum, einhvers konar þungamiðja í samstarfinu. Þessi staða verður gjörbreytt þegar NATO-aðild Svía og Finna verður að veruleika og allar líkur á því að samskipti þjóðanna fimm muni taka einhver mið af því.
Ákvörðun Finna og Svía um aðildarumsókn að NATO er tekin eftir nokkurra vikna umræður en byggir engu að síður á víðtæku samráði. Það er nefnilega hægt að bregðast hratt við þegar aðstæður þjóða krefjast án þess að fagmennska eða nauðsynleg pólitísk umræða sé undanskilin. Evrópusambandið leikur lykilhlutverk í þeirri heimsmynd sem við búum við og munum búa við. (Forseti hringir.) Hagsmunir Íslands kalla á, öskra á, að við tökum utanríkisstefnu okkar til endurskoðunar með það fyrir augum að sækjast eftir aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Það er það skynsamlega í stöðunni.