152. löggjafarþing — 80. fundur,  24. maí 2022.

raunverulegir eigendur.

586. mál
[18:55]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir góða framsögu. Ég er sammála hæstv. ráðherra að það er mjög mikilvægt að raunverulegir eigendur fyrirtækja og annarra lögaðila séu skráðir. Þetta er að sjálfsögðu ekki bara til stoppa peningaþvætti og hryðjuverk heldur líka til þess að tryggja að viðskiptahættir séu góðir.

Mig langaði hins vegar að spyrja hæstv. ráðherra í tengslum við þetta að þegar verið var að vinna í því að skrá raunverulega eigendur kom fram mikið af kvörtunum um að þetta væri svolítið yfirgripsmikið, það væri verið að skrá raunverulega eigendur hjá alls konar félögum, félagasamtökum. Ég var sjálfur á þeim tíma t.d. í stjórn Rauða krossins og skrifaði undir 53 skilgreiningar um að vera raunverulegur eigandi að hinum ýmsu Rauða kross-deildum. Eitt af því sem bent var á í þessu sambandi var að samkvæmt lögunum væri verið að eltast við þá sem eru skráðir í fyrirtækjaskrá. Það er hins vegar þannig að til þess að geta opnað bankareikning og annað á Íslandi þarftu að vera með kennitölu og eina leiðin fyrir félagasamtök og aðra til að fá kennitölu var að vera skráð í fyrirtækjaskrá, þó að þau væru í rauninni ekki fyrirtæki og ekki með atvinnurekstur. Mig langaði að spyrja hvort það væri eitthvað verið að skoða hversu stórt hlutfall af þeim sem ekki eru skráðir eru einfaldlega einhvers konar svona félög en ekki fyrirtæki og lögaðilar.