152. löggjafarþing — 80. fundur,  24. maí 2022.

raunverulegir eigendur.

586. mál
[18:57]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Það er alveg ljóst að mörgum þótti þessi yfirferð ansi yfirgripsmikil en það er bara þannig að við störfum í alþjóðlegum heimi þar sem eru lög og reglur. Til að mynda eru núna, bara svo ég nefni það, 1.300 aðilar sem hafa enn ekki sinnt skráningarskyldu samkvæmt lögum og það þrátt fyrir að ríkisskattstjóri hafi gripið til margvíslegra aðgerða til að knýja fram úrbætur. Það er hins vegar rétt hjá hv. þingmanni að skráningu er einkum ábótavant hjá ófjárhagslegum félögum á borð við almenn félagasamtök, áhugamannafélög o.s.frv. Þar er fyrst og fremst um að ræða félög sem stunda ekki atvinnurekstur og eru mörg hver með litla sem enga virka starfsemi og mjög takmarkaðar eignir að einhverju leyti. Ég skil mætavel að þetta geti valdið ákveðnum óróleika eða pirringi hjá aðilum sem sinna félagsstörfum. Hins vegar tel ég að þetta sé eins og tiltekt. Við þurftum að fara í þetta til að fá betri mynd af þeim félagarekstri sem hér er. Ef það er ekki nógu gott utanumhald um svona félög sjá kannski aðilar sér leik á borði og hafa áhuga á því að skrá félög, vegna þess að þessu er hreinlega ekki sinnt af þeim yfirvöldum sem eiga að gera það. Þannig að ég held að ávinningurinn sé meiri, en vissulega get ég skilið þá sem hafa stundum klórað sér í hausnum yfir því að það séu þessar 53 skráningar.