152. löggjafarþing — 80. fundur,  24. maí 2022.

pakkaferðir og samtengd ferðatilhögun.

587. mál
[19:03]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun. Breytingin varðar lán Ferðaábyrgðarsjóðs til ferðaskrifstofa sem veitt voru árið 2020 vegna lausafjárvanda ferðaskrifstofa sem skapaðist í upphafi kórónuveirufaraldursins. Ferðaábyrgðasjóður veitti ferðaskrifstofum lán til að endurgreiða neytendum greiðslur vegna pakkaferða sem aflýst var vegna áhrifa heimsfaraldursins, en ferðaskrifstofur fengu á þessum tíma almennt ekki endurgreitt frá sínum birgjum erlendis og gátu því ekki endurgreitt viðskiptavinum sínum hér á landi. Ferðaábyrgðasjóður var þannig settur á laggirnar sem hluti af efnahagsaðgerðum ríkisstjórnarinnar. Þykir þessi einstaka aðgerð hafa heppnast mjög vel þar sem neytendur fengu allir sínar greiðslur endurgreiddar í samræmi við lög og lánveitingar sjóðsins og forðuðu ferðaskrifstofum frá gjaldþroti sem leitt hefði til umfangsmikils tjóns fyrir neytendur. Við setningu laganna var gert ráð fyrir að ferðaskrifstofur myndu endurgreiða lán Ferðaábyrgðasjóðs á sex árum með fjórum jöfnum greiðslum árlega. Lánin bera sérstaklega lága vexti í samræmi við vaxtaákvarðanir Eftirlitsstofnunar EFTA og fela þannig í sér ríkisaðstoð í skilningi EES-samningsins. Fyrsta gjalddaga afborgunar hefur hins vegar tvívegis verið frestað þar sem áhrifa kórónuveirufaraldursins hefur gætt í lengri tíma en vonir stóðu til þegar lögin voru sett sumarið 2020. Viðspyrna ferðaþjónustunnar á heimsvísu hefur gengið hægar en gert var ráð fyrir og ferðalög hafa hingað til verið af skornum skammti síðustu tvö árin. Það hefur haft þær afleiðingar að fjárhagsstaða ferðaskrifstofa hefur verið þannig að þær hafa flestar ekki verið í stakk búnar til að takast á við afborganir af lánunum.

Nú sjáum við hins vegar að um leið og áhrif farsóttarinnar taka að hjaðna glæðist ferðageirinn og fólk fer að ferðast aftur. Sumarið í ár lítur til að mynda mun betur út fyrir ferðaþjónustuna hér á landi en undanfarin sumur og bókanir erlendra ferðamanna ganga vel. Aukinn fjöldi ferðamanna til landsins hefur mikil áhrif á stöðu þjóðarbúsins með auknu innstreymi gjaldeyris og auknum umsvifum í hagkerfinu.

Til að tryggja að viðspyrna ferðaþjónustunnar gangi vel nú þegar eftirspurn er að glæðast er lagt til í þessu frumvarpi að lánstími lána Ferðaábyrgðarsjóðs verði lengdur úr sex árum í tíu ár svo ferðaskrifstofum verði gert auðveldara að standa við afborganirnar. Engin ný lán verða veitt og ekki verða neinar aðrar breytingar á kjörum lánanna. Með þessari aðgerð er ríkisstjórnin enn að styðja við íslenskt atvinnulíf og hjálpa því að komast í gegnum skaflinn sem farsóttin hefur búið til.

Virðulegi forseti. Að lokinni þessari umræðu legg ég til að frumvarpið gangi til 2. umr. og hv. atvinnuveganefndar.