pakkaferðir og samtengd ferðatilhögun.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna á þessu frumvarpi. Eins og hæstv. ráðherra benti á er þetta mikilvæg aðgerð sem hluti af viðbrögðum við heimsfaraldri, viðbrögð eins og að það væri ekki hægt að fara í neinar pakkaferðir eða ferðalög. Það er mikilvægt að hægt var að greiða neytendum til baka, að hægt var að halda lífi í þessum ferðaskrifstofum. Þegar þessi lög voru upphaflega sett árið 2020 vorum við með vonir um að Covid myndi taka svolítið styttri tíma en raun er, það eru enn þá að koma upp sýkingar. Ég held að það sé þess vegna mikilvægt að lengja í þessum lánum og gefa ferðaskrifstofunum möguleika á því að byggja sig betur upp. Mun ég sem fulltrúi í atvinnuveganefnd tryggja að þetta mál fái góða umfjöllun þar og hraða afgreiðslu. Ég veit að við ætlum að taka þetta fyrir strax á morgun. Það er ánægjulegt að þetta sé komið fram og gott að við að klárum þetta sem fyrst.