152. löggjafarþing — 80. fundur,  24. maí 2022.

pakkaferðir og samtengd ferðatilhögun.

587. mál
[19:09]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að koma í andsvar og fjalla um mikilvægi þess að við lengjum í lánum. Ég vil líka nefna það hér á hinu háa Alþingi að með tilkomu ferðaþjónustunnar gjörbreyttist greiðslujöfnun þjóðarbúsins. Í fyrsta sinn í nútímahagsögu þjóðarinnar erum við komin með mjög góðan aðgang að greiðslujöfnun. Það er ferðaþjónustan fyrst og síðast sem býr til þann afgang sem fer að myndast árið 2012 til 2019 eða 2020. Þetta er það mikill afgangur að gjaldeyrisforði þjóðarbúsins hefur stækkað verulega og við vorum í raun og veru aldrei í þeirri stöðu að þurfa að hafa verulegar áhyggjur af því að þrýstingurinn á krónuna yrði það mikill að hún myndi veikjast verulega, að það myndi hafa áhrif á verðbólguþrýsting, á verðbólguna, í Covid. Auðvitað var þjónustujöfnuðurinn á því tímabili líka þannig að það fór enginn út og enginn kom inn þannig að við náðum ekki að safna þeim gjaldeyri sem við höfum verið að safna á síðustu árum. Ég tel líka, svo ég nefni það, að á næstunni og núna í gegnum þá miklu áskorun sem við stöndum frammi fyrir vegna yfirvofandi verðbólgu, sem hefur þróast hér innan lands gegnum húsnæðismarkaðinn og verðbólgu sem er að þróast á heimsvísu vegna framleiðsluhnökra í heimsviðskiptum annars vegar og hins vegar vegna hins hrikalega stríðs í Úkraínu, muni ferðaþjónustan vera okkur mjög mikilvæg. Ég ætla að fara aðeins nánar út í það í síðara andsvari.