pakkaferðir og samtengd ferðatilhögun.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Ég er hjartanlega sammála hæstv. ráðherra um að það að vera með ferðaþjónustu sem enn eina stoðina undir hagkerfi okkar sé mjög mikilvægt, bæði hagfræðilega en líka til að tryggja að við séum ekki með öll eggin í sömu körfunni. Það er skemmst frá því að segja að í morgun komu á fund atvinnuveganefndar gestir frá fylkisþinginu í Saxlandi í Þýskalandi og ein af þeim spurningum sem brann á þeim þingmönnum var: Hvernig byggðuð þið ferðaþjónustuna svona vel upp fyrir Covid og hvernig eruð þið að byggja hana upp núna? Þannig að aðrir eru farnir að líta til Íslands sem lands sem kann að vera með ferðaþjónustu, ekki bara eina tegund af ferðaþjónustu heldur mismunandi tegundir þar sem við erum bæði að reyna að höfða til þeirra sem koma og dvelja stuttan tíma og þeirra sem dvelja lengur, þeirra sem koma á eigin vegum, þeirra sem eru hér á vegum ferðaskrifstofa, þeirra sem koma með skemmtiferðaskipum o.s.frv. Fólk hefur tekið eftir þessu og það er ánægjulegt. Það var mjög ánægjulegt fyrir okkur í atvinnuveganefndinni í morgun að geta sagt hvað er verið að gera hér og kynnt það vel fyrir kollegum okkar í fylkisþinginu.