152. löggjafarþing — 80. fundur,  24. maí 2022.

pakkaferðir og samtengd ferðatilhögun.

587. mál
[19:13]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil taka undir með hv. þingmanni um að það er auðvitað mjög merkilegt hvernig ferðaþjónustan hefur þróast á mjög stuttum tíma. Mig langar að nefna það að mér áskotnaðist leiðari Morgunblaðsins frá árinu 1919, að ég held, þar sem var áskorun til íslenskra stjórnvalda um að ákveða sig hvort þau ætluðu að bjóða ferðamenn velkomna til landsins og gera þá eitthvað í því með því að byggja upp innviði, eða þá að láta þetta eiga sig. Það var líka bent á það í þessum leiðara að þeir sem heimsæktu landið kynnu hreinlega betur að meta landið en þeir sem væru búsettir hér. Það er í raun og veru ekki fyrr en eftir fjármálahrunið að ferðaþjónustan fer að aukast verulega og fjöldi ferðamanna fer frá því að vera um 500.000 árlega í 2 milljónir. Ég tel reyndar að góðir hlutir gerist hægt. Ég tel að við eigum að horfa á gæði þeirrar þjónustu sem er veitt hér. Ég tel að ferðaþjónustan hingað til hafi verið mjög farsæl í því og að við eigum að horfa á það enn frekar. Eitt af því sem ég tel mikilvægt að gera enn betur er að fara inn á slóðir heilsutengdrar ferðaþjónustu þar sem við höfum allt til alls, þetta hreina loft og hreina vatn sem er sífellt að verða meira eftirsóknarvert. Ég tel líka að þær aðgerðir sem ríkisstjórnin greip til í kórónuveirufaraldrinum hafi verið algerlega nauðsynlegar og við gerðum í raun og veru efnahagslega loftbrú á þessu tímabili þannig að fyrirtækin og allir gætu svo sannarlega tekið þátt í endurreisninni. Og eins og við sjáum að er að gerast þessa dagana þá er það mikill gangur í ferðaþjónustunni að nú skortir vinnuafl. En það vill svo skemmtilega til að það er talsvert af vinnuafli hér í landinu.