152. löggjafarþing — 80. fundur,  24. maí 2022.

pakkaferðir og samtengd ferðatilhögun.

587. mál
[19:16]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir seinna andsvarið. Ég held að við séum alveg sammála um allt sem þar kom fram. Ég held að við Íslendingar getum verið stolt af því hvernig við nýttum ferðaþjónustuna sem nýja stoð í hagkerfi okkar. Og þegar kom að því að auglýsa landið þá fórum við nýjar og ótroðnar slóðir. Við vorum óhrædd við að prófa hluti, vorum óhrædd við að ná til fólks á nýjan máta. Við ræddum líka hér í gær um mikilvægi kvikmyndanna og sjónvarpsþáttanna í að gera Ísland að áhugaverðum stað. Við þurfum auðvitað að tryggja að það sé allt landið sem er áhugavert, ekki bara suðvesturhornið, og ég veit að við erum að vinna vel í því öllu saman. Ég held að við getum bara verið stolt af því hvernig við höfum tekist á við þessa hluti og það er þannig hjá mér persónulega að ég fæ næstum því daglega núna skilaboð frá vinum og kunningjum úti um allan heim sem segja: Nú ætla ég að koma til Íslands. Þannig að ferðamennskan er komin á fullt aftur.