152. löggjafarþing — 80. fundur,  24. maí 2022.

minnisvarði um eldgosið á Heimaey.

376. mál
[19:26]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni andsvarið og taka undir þá hugmynd sem hann kom með hér undir lok andsvars síns. Ég held að það geti skapast tækifæri til þess, t.d. á fundi norrænna forsætisráðherra, að ræða björgunarstarf, ekki síst hér þar sem við erum nærri norðurslóðum og á norðurslóðum. Það hefur mikil umræða farið fram á vettvangi Norðurlandaráðs um þau mál sem lúta að samfélagslegu öryggi okkar. Þannig að ég held að þetta sé góð hugmynd frá hv. þingmanni og tek hana áfram. Hún gæti verið á dagskrá þessa fundar.