minnisvarði um eldgosið á Heimaey.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir að flytja þessa þingsályktunartillögu sem er mér mikið gleðiefni að sé komin fram núna. Ég hef áður flutt sams konar mál, í tvö skipti, sem fjallar um þessa atburði. Það er alveg stórkostlegt að enn skuli vera á lífi fólk sem man þessa atburði vel. Ég var 17 ára þegar þetta gerðist og þetta líður manni auðvitað aldrei úr minni. Árið 2023 verða ekki aðeins 50 ár liðin frá Heimaeyjargosinu heldur hófst fyrir 60 árum gos í Surtsey, 14. nóvember 1963, 18 sjómílur vestur af Vestmannaeyjum og skerjum. Það var gríðarlegur atburður. Surtseyjareldar stóðu í fjögur ár eða 1.300 daga og urðu til fjórar eyjar. Reyndar náði Surtla ekki upp úr yfirborði sjávar en Syrtlingur, sem byrjaði að gjósa í maí 1965, gaus í fjóra mánuði og varð 500 m langur og 100 m hár. Svo var það Jólnir sem byrjaði að gjósa á jólunum 1965 og gaus fram í september 1966. Hann varð gríðarlega stór, u.þ.b. 600 m langur og var 70–80 m hár og þar voru gríðarleg gos. En þessar eyjar hurfu ótrúlega skjótt eftir að hætti að gjósa í þeim enda náði þar aldrei að renna hraun.
Ég hef á undanförnum árum verið að taka saman upplýsingar um þessi gos sem eru mér mjög hugleikin. Ég mun reyndar í þar næsta mánuði gefa út bók sem fjallar um atburði sem gerðust í og við Surtsey og gosunum sem þar komu upp. Bókin mun koma út á Goslokahátíðinni. Þar koma fram upplýsingar sem ekki hafa birst áður og segja okkur að á þessum árum fóru menn um og létu ekki vita af því sem gerðist. Það var auðvitað ekki mjög mikið um fréttir og blaðamenn voru ekki á hverjum bát. En það gerðust ótrúlegir atburðir, t.d. þegar Frakkarnir urðu fyrstir í land í Surtsey 6. desember 1963, rétt á undan Eyjamönnum sem ætluðu að skjóta sér í land þann föstudag. Viku seinna fór flokkur Stýrimannaskóladrengja með Guðjóni Ármanni Eyjólfssyni skólastjóra í broddi fylkingar út í eyjuna Surtsey, sem var þá nýbúið að nefna. Vestmannaeyingar voru mjög óánægðir með það nafn og fóru með borða út í eyjuna með nafninu Vesturey. Þar gerðust atburðir sem aldrei hafa birst á prenti opinberlega þegar því heill bekkur í Stýrimannaskólanum fórst næstum því í eyjunni þegar gos helltist yfir þá. Við skýrum líka frá því þegar flug hófst út í Surtsey. Þangað var stundað áætlunarflug, hópferðir, af Birni Pálssyni. Það voru ótrúlegir hlutir sem gerðust og það gerðist allt áður en eyjan var friðlýst í lok sumarsins 1965.
Virðulegi forseti. Ég er sannfærður um það eftir að hafa kynnt mér þessi mál vel að Surtseyjargosið undirbjó Vestmannaeyinga ótrúlega vel undir það gos sem hófst 23. janúar 1973. Öll sú stilling og hógværð sem var í fólkinu nóttina þegar gaus og við flúðum eyjuna hefur örugglega verið vegna þeirrar reynslu sem 1.300 dagar í Surtseyjargosi höfðu gefið okkur Eyjamönnum. Það er ótrúlega mikilvægt og ég er ákaflega þakklátur hæstv. forsætisráðherra fyrir að koma fram með þessa tillögu og að hér skuli vera tjaldað til einum merkilegasta listamanni þjóðarinnar til að hjálpa okkur að minnast þessara atburða á veglegan hátt, svolítið í anda Eyjamanna. Þótt ég viti að forsætisráðherra ætli kannski ekki að reisa annan Heimaklett í Vestmannaeyjum þá þarf þetta að vera jafn mikið þegar við förum að kalla eftir nýjum segli fyrir eyjarnar og fyrir framtíðina. Það er gríðarlega mikilvægt að minning þessara atburða sé í hávegum höfð.
Surtseyjareldar eru eitthvert mesta gos í sjó við Ísland frá landnámi. Það gaus úr mörgum gígum á langri sprungu sem náði síðan í gegnum Eyjar og upp í Eyjafjallajökul og upp í gegnum landið. Þetta þekkja jarðfræðingar og hafa sagt okkur frá því. Við erum því að minnast hér gríðarlegra atburða þegar 5.000 manns flúðu heimili sín á einni nóttu í ótrúlegri ró og spekt. Ég held líka að það sé það sem við eigum að gera þegar við förum að minnast þessara atburða, að minnast þessa fólks sem byggði upp bæinn okkar, stjórnaði uppbyggingunni og gerði það af slíkum myndarskap að það var aldrei vafi um það að eyjan myndi rísa á ný, fólkið myndi koma aftur og það yrði aftur haldin þjóðhátíð, enda þarf mikið til til að hún sé ekki haldin.
Ég fagna líka sérstaklega að ráðherrum Norðurlanda skuli hafa verið boðið til Vestmannaeyja. Þáttur Norðurlandanna í þessu máli öllu saman er gríðarlega mikilvægur. Ég gleymi því aldrei þegar þau komu og færðu Vestmannaeyjabæ elliheimili að gjöf og hversu margir glöddust yfir því. Það voru margir aðilar á Norðurlöndum sem tóku þátt í þessu; félagasamtök og einstaklingar sem færðu eyjunum gríðarlega aðstoð og hjálp. Ég er félagi í einu slíku félagi sem hjálpaði til. Þegar við hittust á sameiginlegum norrænum fundi fyrir nokkrum árum og ég minnti fólk á það þá var það auðvitað búið að gleyma því öllu saman. Síðan var haldinn sambærilegur fundur og forsætisráðherrafundurinn úti í Vestmannaeyjum til að minna þetta fólk á hversu mikilvægur þeirra þáttur var.
Ég hlakka til, hæstv. forsætisráðherra, þegar þetta mál verður komið í höfn og við megum gleðjast og fagna. Ég þakka þér sérstaklega fyrir allt framlag þitt í þessu máli og velvild. Og bæjarstjóranum í Vestmannaeyjum líka. Þið eruð bara frábærar.