minnisvarði um eldgosið á Heimaey.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir að leggja þessa tillögu fram, minnisvarða um eldgosið í Heimaey. Ég vil einnig þakka hv. þm. Ásmundi Friðrikssyni fyrir framlag sitt í þessu máli. Ég tel að hér sé um mjög mikilvægt mál að ræða og þessi atburður, eldgosið í Heimaey, hefur sannarlega markað djúp spor í allri Íslandssögunni. Þannig er mál með vexti að ég er fæddur í Vestmannaeyjum og ég var þriggja og hálfs árs upp á dag þegar eldgosið átti sér stað. Ég man enn þá aðeins brot frá gosnóttinni, þegar ég horfði út um stofugluggann heima á Kirkjubæjarbraut 21 og sá steinana og allt fólkið við höfnina. Ekki síður þegar ég var með lokuð augun, pabbi kom niður í káetuna og spurði hvar Eyvi væri og var sagt að ég væri farinn að sofa, en ég var ekki farinn að sofa. Svo var ég lagður í koju og svaf alla siglinguna til Þorlákshafnar. Það voru tveir einstaklingar sem ekki voru sjóveikir á leiðinni og það voru ég og afi. Ég var rosalega montinn, var alltaf að monta mig af því og afi var alltaf að minna mig á að við tveir hefðum ekki verið sjóveikir á leiðinni til lands.
Móðir mín vaknaði klukkan hálf tvö um nóttina, þessa örlagaríku nótt, og hélt að verið væri að logsjóða. Hún vakti föður minn sem sá strax að það var komið eldgos austur á bæjum, Kirkjubæjum. Við bjuggum á Kirkjubæjarbraut 21, sem var algjörlega nýtt hverfi, nýtt hús, ómálað, ófrágengið enn, og það var ekki að sökum að spyrja að við þurftum að fara strax til hafnarinnar. Sem betur fer, eins og kemur fram í greinargerð með þingsályktunartillögunni, gekk fyrir mikla mildi giftusamlega að koma öllum heilu og höldnu frá eyjunni fyrsta sólarhring gossins. Það var vegna þess að veðrið daginn áður hafði verið svo slæmt, það var vindur og rok og bróðir minn fékk ekki að gista hjá félaga sínum vegna þess að veðrið var svo slæmt. Þess vegna var allur flotinn í höfn. Það hefði verið öðruvísi ef flotinn hefði ekki allur verið í höfn þessa örlagaríku nótt.
Ég tel reyndar að það sé eitt sem ekki hefur verið fjallað um varðandi eldgosið í Vestmannaeyjum. Þetta var fyrir tíma áfallahjálpar og ég held að þetta hafi verið miklu meira áfall fyrir íbúa Vestmannaeyja en komið hefur fram í fjölmiðlum eða í umræðunni og ekki síst fyrir eldra fólk. Afi minn var kominn yfir sjötugt á þessum tíma og bjó á Bessastöðum. Báðir synir hans voru komnir með fjölskyldur í túninu heima, á Búastöðum og á Kirkjubæjarbraut. Og heimurinn hvarf algerlega. Ég hef oft hugsað um þetta. Þetta er ekki heimur sem er sprengdur í loft upp eða neitt svoleiðis, heldur hverfur hann bara tilvistarlega séð. Ég man svo vel þegar ég kom til Vestmannaeyja sem unglingur að taka þátt í íþróttum hvað ég varð fyrir miklum vonbrigðum. Það var af því að goshraunið gnæfði þar yfir öllu. Fólkið í höfuðborginni, Reykjavík — fjölskyldan mín flutti aldrei til baka aftur — var alltaf að tala um heiminn, þennan merkilega heim, Vestmannaeyjar fyrir gos, þennan horfna heim. Það var eins og það lifði áfram í þessum heimi fyrir gos og það var talað t.d. um fólk innan girðingar. Mamma kallaði það alltaf að girðingarliðið væri að koma í fermingarveislu og annað slíkt. Þetta var mjög sérstakt samfélag, skemmtilegasti og fallegasti hluti eyjarinnar. Ég tel að það sé mjög mikilvægt að minnast þessa atburðar og ekki síst vegna þess hversu mikið áfall þetta var fyrir sögu Eyja.
Það er minnst á Norðurlöndin og að þau hafi lagt mikið til, en það var líka bandaríski herinn og Bandaríkjamenn sem aðstoðuðu við hraunkælinguna, sem var alveg einstök á sínum tíma, við að koma í veg fyrir að innsiglingin til Eyja lokaðist. Hefði það gerst hefðu Vestmannaeyjar jafnvel ekki verið öflug verstöð áfram eins og þær eru í dag. Það var því mikið í húfi á þessum tíma. Sem betur fer tókst að bjarga innsiglingunni.
Annað sem er mjög mikilvægt er að það tókst að bjarga innbúi fólks úr húsum. Ég á sjálfur enn þá húsgögn sem á stendur ÁE, sem hefur verið tússað á bakhliðina. Innbúið var sett strax á vörubílspall og keyrt í burtu og þannig tókst að bjarga því. Íbúarnir fóru líka með bát daginn eftir, einum eða tveimur dögum seinna, til að bjarga út úr húsunum sem fóru undir hraun. Okkar hús fór undir hraun og fleiri hús. Það er reyndar búið að grafa smá upp, nokkur hús, fyrir ferðamenn.
Ég tel að það að minnast þessara gosloka, og ekki síst náttúrlega gosbyrjunarinnar 23. janúar, sé mjög mikilvægt. Ég vona að minnismerkið verði veglegt, og það hefur verið valinn frábær listamaður, og ég tel að Goslokahátíðin sjálf sé mjög mikilvæg fyrir Eyjamenn. Eins og kom fram hjá hv. þm. Ásmundi Friðrikssyni þá er hérna um eldstöð að ræða, Heimaey, og hún er hluti af eldstöðvakerfinu og þeirri virkni sem hófst fyrir tæpum 60 árum síðan með Surtseyjargosinu. Hv. þm. Ásmundur Friðriksson minntist á föður minn, Guðjón Ármann Eyjólfsson. Hann kom með þriðja hópnum í land. Þeir voru í keppni við blaðamenn franska tímaritsins Paris Match, sem urðu fyrstir og svo komu tveir hópar Íslendinga. Það kom gosstrókur yfir þriðja hópinn þegar hann fór í land. Það var náttúrlega gríðarlegt hraunrennsli og mikil aska þarna og mjög laust í. En þeir komust í land eftir að hafa lent í þessu og móðir mín talar enn um að hún hafi aldrei séð jafn mikinn skelfingarsvip og á pabba þegar hann kom aftur heim eftir þessa svaðilför. Ég bíð spenntur eftir að fá að sjá bók hv. þm. Ásmundar Friðrikssonar. Ég veit að þar eru mjög skemmtilegar myndir, m.a. af föður mínum. Ég held að það sé mjög verðugt að gefa bókina út í tilefni 60 ára afmælisins og tel mikilvægt að minnast líka þess goss og þeirra eldsumbrota sem áttu sér stað tíu árum fyrir eldgosið í Vestmannaeyjum.
Ég held minningin um þetta gos sé mjög rík í hugum þjóðarinnar. Ég hef búið í Noregi undanfarið og Norðmenn á ákveðnum aldri muna enn þá eftir þessu gosi, muna hvar þeir voru staddir þegar þeir heyrðu fyrst af því. Ég tel mjög gott tilefni á þessum fundi forsætisráðherra á sama tíma og 50 ára afmælið verður til að ræða almannavarnir á norðurslóðum eða á Norðurlöndunum við svona hamfarir. Við sjáum núna að það er aukin virkni á Reykjanesinu og sennilega koma nýir Kröflueldar, sem við getum kallað þá, á 10–15 ára tímabili og við vitum ekki hvernig verður með eldgos og hvar eldgos getur brotist út á þeim tíma.
Ég fagna þessu eindregið og fagna líka því að það verði skipuð nefnd sem mun koma að hátíðahöldum og að það verði haft samráð við fulltrúa frá Alþingi, Vestmannaeyjabæ og forsætisráðherra við undirbúning á kaupum á minnisvarðanum. Ég vona að goslokafmælið verði ein af þeim þjóðhátíðum sem við höldum með vissu árabili og að við getum minnst þessa goss með réttum hætti og svo sómi sé að fyrir Vestmannaeyinga og landið allt. Ég bíð mjög spenntur eftir að sjá minnisvarðann og ekki síst bók hv. þm. Ásmundar Friðrikssonar.