152. löggjafarþing — 80. fundur,  24. maí 2022.

minnisvarði um eldgosið á Heimaey.

376. mál
[19:43]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf):

Virðulegur forseti. Ég fagna framlagi forsætisráðherra og Ásmundar Friðrikssonar til þessa máls. Ég get ekki stillt mig um að deila með ykkur upplifun minni af þessu gosi. Velgjörðarmaður minn og vinur frá fyrstu árum hljóðfæraleiks míns á opinberum vettvangi með þeirri útgáfu Stuðmanna sem hét Rifsberja, var Sigurður Rúnar Jónsson, kallaður Diddi fiðla, sonur Jóns bassa Sigurðssonar, faðir Ólafs Kjartans Sigurðarsonar, óperusöngvara í Þýskalandi. Hann hafði dregið mig með sér í tvær miklar svaðilfarir. Mikið náttúrubarn, Diddi. Ég hafði farið með honum upp á hálendið í hálfgerðra hættuför og verið í hálfgerðu villimannslífi. Og nú er hann, tónmenntakennarinn í Vestmannaeyjum, sérstakur gestur okkar í Tónabæ í Reykjavík 23. janúar 1973. Það kemur ungur maður hlaupandi í næstsíðasta lagi og segir: Diddi, Diddi, það er hafið Vestmannaeyjagos og húsið þitt er að hverfa. Og Diddi segir svona „instinctively“ við mig: Jakob, þú verður að koma með mér og bjarga Hammond-orgelinu mínu. Það er á efri hæðinni í húsinu, sundur tekið. Þetta var dýrmætasta orgel Íslands því að hann hafði búið til úr því í rauninni nýtt hljóðfæri sem gat hljómað eins og heil sinfóníuhljómsveit, klarinett og hvað það nú var. Ég sagði: Getum við klárað? Við eigum bara eitt lag eftir. Við kláruðum lagið og svo hófst smá rekistefna. En ég sagði: Ertu galinn, að við séum að fara í miðju gosi út í Eyjar? Já, ég þekki útgerðarmann í Þorlákshöfn, hann mun skutla okkur. En hvað með gosið? Ja, við fáum bara hjálma og hempur. [Hlátur í þingsal.]

Ég hef ekki sagt þetta opinberlega áður en þetta var satt að segja ofboðslega hættulegt ævintýri, eins og ég hafði reyndar upplifað í tvígang áður með Sigurði. Og með hjálma á höfði og klæddir í hempur þá sigldum við með þessum fiskibát að eyjunum. Þar beið okkar traktor með heyvagni sem ók okkur upp að húsinu. Það var sannarlega við að hverfa. Það var vikur og bingur þarna sem ég gróf og komst upp á þakið með Didda. Ég smeygði mér niður um þakgluggann með einhvern poka og byrjaði að handlanga upp partana, lampann og allt sem fylgdi Hammond-orgelinu. Svo tók ég einhverja lausamuni þarna með. Svo var búið að fylla pokann og ég klifraði út og við fórum aftur niður malarbinginn og niður á bryggju þar sem traktorinn skilaði okkar og sigldum aftur til Þorlákshafnar. Á leiðinni, þegar maður horfir um öxl á þessa dramatísku sjón og eldgosið þarna í fullum gangi þá verður Diddi aðeins meyr og segir: Nú á ég hvergi heima og Ólafur litli Kjartan og Ásgerður mín. Þá segir hippinn: Þú býrð bara hjá okkur, vinur. Við bjuggum, feðgarnir, á einni hæð við Fjölnisveg og þau fluttu bara inn til okkar.

Þessi mynd af Vestmannaeyjagosinu var svo sterk í huga mér að þegar ég rakst á stóra ljósmynd af Vestmannaeyjagosinu þá keypti ég hana og rammaði inn og hún hékk uppi inni á baðherberginu mínu í húsinu í Los Angeles. Þangað kom í heimsókn til mín frægasti bassaleikari, ég leyfi mér að segja sögunnar, Jaco Pastorius, úr Weather Report, fremstu rafhljómsveit síns tíma, og hann varð svo hugfanginn af þessari mynd og þessari sögu, sem var sögð í styttra formi þarna, að eftir nokkrar ferðir á klósettið þá sagði hann: Ég get ekki hætt að hugsa um þetta. Þá tók ég myndina, afhenti honum og sagði: Þú mátt eiga hana. Og á næsta plötuumslagi þessarar frægustu rafdjasshljómsveitar síns tíma birtist myndin af Vestmannaeyjagosinu, „Night Passage“, heitir hún, með Weather Report, og er talin ein þeirra allra besta plata.

Þessari sögu vildi ég bara fá að deila með ykkur svona utan dagskrár, elskurnar. [Hlátur í þingsal.] Ég óska ykkur til hamingju með framlagið, bókina og allt það og hlakka til að sjá glæstan minnisvarða eftir Ólaf Elíasson.