aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Herra forseti. Mig langar að byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir að leggja fram þetta frumvarp. Það er mikilvægt að við fylgjum því þegar kemur að peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, að ný tækni geri ekki þessum aðilum kleift að komast upp með hluti sem við viljum ekki að þeir geti gert. Það er mikilvægt að átta sig á því að þó svo að fyrri löggjöf hafi fjallað um rafeyri, eða eins og það er kallað á ensku, með leyfi forseta, ,,cryptocurrency“, þá er það þannig að nýjar tegundir af, ja hvað skal segja, svokölluðum sýndareignum hafa orðið til og þær nota í grunninn sömu tækni og rafeyrir. Ein besta lýsingin á því hvernig verið er að nota sýndareignir, sem hafa verið kallaðar á ensku, með leyfi forseta, ,,non-fungible token“, er að það hefur verið hægt að kaupa og selja t.d. list, stafræna list á netinu. Einhver frægasta stafræna listin sem hægt er að kaupa og selja á netinu í dag gengur undir nafninu Leiðu aparnir, eða eins og það heitir á ensku, með leyfi forseta, ,,Bored Apes”. Hér er einmitt dæmi um slíkt. Þetta er mynd af apa sem er mjög leiður. Okkur getur fundist það fyndið og áhugavert. En sú list sem búin hefur verið til af þessum öpum einum saman hefur verið keypt og seld fyrir 130 milljarða íslenskra króna — 130 milljarða íslenskra króna. Það er auðvelt að nýta slíkar peningaupphæðir til peningaþvættis eða til þess að fjármagna hryðjuverk og því er mikilvægt að við uppfærum löggjöfina til að taka utan um þetta.
Við getum síðan öll spurt okkur hvað það er að geta keypt og selt stafræna list. Miðað við að þetta skuli hafa skapað 130 milljarða dettur mér í hug að við ættum kannski að reyna að selja myndir af okkur þingmönnum til að fjármagna íslenska ríkið. (Gripið fram í: Það vill enginn kaupa það.) Það er spurning hvort myndir af sumum þingmönnum seljist á hærra verði en af öðrum. Ég segi aftur: Ef við getum fengið 100 milljarða fyrir þetta þá er hægt að fjármagna ansi margt fyrir það. En að öllu gríni slepptu þá er þetta tækni, þetta eru hlutir sem eru að seljast, sem er verið að kaupa og því mikilvægt að löggjöfin sé uppfærð til þess að þessir Leiðu apar séu ekki að fjármagna mútur eða hryðjuverk.
Mig langar aðeins að nefna aðra hluta frumvarpsins. Við þingmenn föllum einmitt undir þessi lög sem aðilar með náin stjórnmálaleg tengsl. Nú þarf ég alltaf að segja við þá aðila sem ég hef verið að skipta við að ég sé með þessi tengsl og að þeir þurfi því að gera áreiðanleikakönnun. Og eitt af því sem hefur þá verið kvartað yfir og er kannski nokkuð sem nefndin getur skoðað nánar, er að það er ekki alveg á hreinu hvað það þýðir að gera áreiðanleikakönnun. Einn aðilinn orðaði það þannig við mig að þegar beðið væri um áreiðanleikakönnun þá dygði, alla vega miðað við sumar leiðbeiningar sem þeir fengu, að slá inn nafn viðkomandi í leitarvél Google og athuga hvað kæmi upp á fyrstu síðunni, prenta það út og láta það fylgja með. Það var nú öll áreiðanleikakönnunin. Og þegar hann svo reyndi að spyrja eftirlitsaðilann hvað það þýddi sem stæði í 8. gr. laganna um að beita skuli aukinni áreiðanleikakönnun, þá sagði viðkomandi eftirlitsaðili: Ja, ætli þú þurfir þá ekki að prenta út fyrstu tvær síðurnar af Google. Þetta er greinilega eitthvað sem þarf að laga. Kannski væri möguleiki að setja inn í lögin eitthvað í þá veru að gefa skuli út reglugerð um það hvernig áreiðanleikakannanir skuli fara fram og þannig sé hægt að tryggja að þetta sé ekki bara í orði heldur sé líka nánar skilgreint hvernig þetta er nýtt.
Áður en ég lýk máli mínu þá hvet ég að sjálfsögðu þingmenn til að spá í hvaða þingmannamynd í svona sýndareign myndi seljast á hæsta verði á netinu.