áfengislög.
Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á áfengislögum, nr. 75/1998, lögum um verslun með áfengi og tóbak, nr. 86/2011, og lögum um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991, með síðari breytingum.
Markmið frumvarpsins er að heimila þrönga undanþágu frá einkaleyfi Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins á smásölu áfengis með því að heimila smærri áfengisframleiðendum, sem uppfylla ákveðin skilyrði laganna, að selja áfengt öl í smásölu á framleiðslustað. Frumvarp sama efnis hefur áður verið lagt fram. Það frumvarp gekk til allsherjar- og menntamálanefndar á síðasta ári en hlaut ekki frekari afgreiðslu þá. Frumvarp þetta er því lagt fram í aðeins breyttri mynd, m.a. vegna framkominna umsagna við þinglega meðferð.
Á undanförnum áratug hefur smærri brugghúsum, svokölluðum handverksbrugghúsum, fjölgað mikið um allt land. Handverksbrugghús eru í eðli sínu smá og leggja áherslu á gæði, sjálfstæði og minni framleiðslu. Samtök íslenskra handverksbrugghúsa voru stofnuð á árinu 2018 og eru meðlimir þeirra nú á þriðja tug. Smærri brugghús hafa á liðnum árum leitast við að byggja upp ferðamennsku í kringum rekstur sinn, sér í lagi á landsbyggðinni, en telja má að mikill meiri hluti starfa við smærri brugghús sé utan höfuðborgarsvæðisins. Samhliða fjölgun brugghúsa hefur áhugi á innlendri áfengisframleiðslu aukist. Endurspeglast það m.a. í umtalsverðri fjölgun á íslenskum áfengisafurðum, þá sérstaklega áfengu öli sem framleitt er í fjölbreyttu úrvali hér á landi. Erfitt hefur verið fyrir smærri framleiðendur að koma afurðum í sölu í gegnum Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins vegna eðlis framleiðslunnar sem í tilviki handverksbrugghúsa er oft í litlu magni og tímabundið. Með frumvarpinu er leitast við að styðja við áframhaldandi vöxt og þróun í rekstrarumhverfi þeirra sem mun um leið efla atvinnustarfsemi á landsbyggðinni.
Með samþykkt þessa frumvarps verður handhafa leyfis til að framleiða áfengi, sem er undir ákveðnu framleiðsluhámarki, heimilt að óska eftir viðbótarleyfi til smásölu á framleiðslustað. Gert er ráð fyrir að heimildin taki til áfengs öls sem gerjað er úr möltuðu eða ómöltuðu korni og inniheldur að hámarki 12% vínanda að rúmmáli að undangengnu því viðbótarleyfi sem frumvarpið mælir fyrir um. Einungis smærri brugghús geta fengið leyfi til sölu á framleiðslustað en skilyrði er fyrir veitingu leyfisins að umsækjandi framleiði ekki meira en 500.000 lítra af áfengi á almanaksári.
Þrátt fyrir að á þriðja tug brugghúsa sé í samtökum íslenskra handverksbrugghúsa þá er áfengisframleiðsla téðra brugghúsa ekki hátt hlutfall af heildaráfengisframleiðslu Íslands. Verði frumvarpið að lögum og sala áfengs öls á framleiðslustað í smásölu heimiluð mun það fela í sér tiltölulega litla aukningu á seldu áfengi. Gera má ráð fyrir að sala á grundvelli framleiðslusöluleyfis eigi sér fyrst og fremst stað í tengslum við ferðaþjónustu hjá leyfishafa. Þó má einnig ætla að breytingin sem lögð er til muni styrkja sölu leyfishafa í nærumhverfi. Í því sambandi þarf þó að hafa í huga að framleiðslustaðir áfengisframleiðenda eru almennt ekki staðsettir þar sem hefðbundin verslun fer fram. Hvað sem því líður má ætla að breytingin muni styrkja rekstur smærri brugghúsa, sérstaklega á landsbyggðinni.
Í samræmi við fyrirkomulag varðandi innflutning, framleiðslu og heildsölu áfengis er með frumvarpinu lagt til að heimilt verði að selja áfengt öl á framleiðslustað að fengnu leyfi til þess. Sýslumenn munu annast leyfisveitingu á sama hátt og verið hefur með önnur leyfi samkvæmt áfengislögum. Að auki þarf að liggja fyrir umsögn sveitarstjórnar þar sem starfsemin er fyrirhuguð. Er ráðgert að sýslumaður afli slíkrar umsagnar við umsóknarferli og verður leyfi ekki veitt ef sveitarstjórn telur að þau skilyrði sem henni er ætlað að leggja mat á séu ekki uppfyllt. Ef sveitarstjórn veitir jákvæða umsögn er henni jafnframt heimilt að binda umsögnina með ákveðnum skilyrðum. Sveitarstjórnir hafa með þessum hætti ákveðið ákvörðunarvald um hvort sala á framleiðslustað skuli leyfð innan sveitarfélagsins og með hvaða hætti. Þá mun ráðherra með reglugerð geta kveðið nánar á um leyfisveitingu og eftirlit með leyfishöfum.
Með frumvarpinu er reynt að koma til móts við sjónarmið bæði þeirra sem vilja aukið frjálsræði í verslun með áfengi og þeirra sem kjósa aðhaldssama áfengisstefnu. Frumvarp þetta hróflar ekki við hlutverki Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins. Þá felur frumvarpið ekki í sér tillögur um breytingu á áfengisstefnu, áherslum í lýðheilsumálum eða tekjuöflun ríkisins á þessu sviði. Frumvarpinu er ekki ætlað að stuðla að aukinni neyslu áfengis eða gera áfengi sýnilegra í íslensku samfélagi. Einungis er verið að gera smærri brugghúsum kleift að selja sína vöru til neytenda í ákveðnum tilvikum en með skýrum takmörkunum. Er því ekki ástæða til að ætla að áfengisneysla og sá vandi sem henni kann að fylgja muni aukast verði frumvarpið að lögum. Þrátt fyrir aukna heimild til smásölu áfengis verða áfengisauglýsingar enn óheimilar í bili og hefðbundinn verslunarrekstur með áfengi verður enn í höndum Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins. Ekki er talið að þær breytingar sem frumvarpið gerir ráð fyrir muni hafa teljandi áhrif á lýðheilsu þjóðarinnar þrátt fyrir að sölustöðum áfengis kunni að fjölga. Verði frumvarpið að lögum er ekki gert ráð fyrir að það muni hafa í för með sér teljandi áhrif á afkomu ríkissjóðs og ekki er talið að það muni hafa áhrif á fjárhag sveitarfélaga.
Virðulegur forseti. Ég hef nú gert grein fyrir efnisatriðum frumvarpsins. Ég legg því til að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. allsherjar- og menntamálanefndar og 2. umr.