152. löggjafarþing — 80. fundur,  24. maí 2022.

áfengislög.

596. mál
[20:35]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg):

Virðulegi forseti. Í hvert sinn sem útvíkka á heimildir einkaaðila til áfengissölu er mikilvægt að líta til þess hvaða áhrif aukið aðgengi kann að hafa. Mér er því bæði ljúft og skylt að koma hingað upp í dag og halda á lofti sjónarmiðum sem lúta að forvörnum og lýðheilsu almennings. Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins skapar okkur ákveðna sérstöðu meðal annarra ríkja. Samhliða forvörnum og lagaumhverfi hliðhollu lýðheilsusjónarmiðum hefur neysla ungmenna á Íslandi á áfengi dregist saman á síðustu áratugum. Það er fagnaðarefni þar sem ungmenni eru sá hópur sem hvað mikilvægast er að ná utan um, en á þessum aldri er fólk sérstaklega viðkvæmt fyrir langtímaáhrifum áfengisneyslu. Þetta styðja rannsóknir sem sýna að þau sem hefja áfengisneyslu snemma á unglingsárunum eru í aukinni hættu á að þróa með sér ýmis mein tengd áfengisneyslu. Á sama tíma og neysla áfengis hefur dregist saman hjá ungmennum hefur neysla í lítrum aukist á hvern Íslending. Í því samhengi má líta til þess að knæpum og útsölustöðum hefur fjölgað umtalsvert síðasta áratuginn, ekki síst með tilkomu ferðamanna. Þá hefur ólögleg netsala með áfengi einnig greitt veginn og er mikilvægt að við komum böndum á slíka starfsemi.

Í því samhengi bendi ég á tvær fyrirspurnir þess efnis sem hv. þm. Steinunn Þóra Árnadóttir hefur lagt fram til hlutaðeigandi ráðherra og óskað svara við því hvernig bregðast megi við því að áfengi sé selt innan lands í vefverslunum einkaaðila þrátt fyrir einkaleyfi Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins.

Þegar litið er til lýðheilsuvandans sem hlýst af aukinni áfengisneyslu meðal almennings ber að hafa í huga að um er að ræða langvinna, líkamlega og andlega sjúkdóma þar sem afleiðingarnar koma fram á löngum tíma, yfir áratugi jafnvel. Þá hafa rannsóknir sýnt fram á hækkandi tíðni ýmissa krabbameina og skorpulifur. Ég tel mikilvægt að við séum upplýst og meðvituð um þessa hlið málsins þegar taka á ákvarðanir sem leiða til aukins aðgengis að áfengi líkt og sala áfengis á framleiðslustöðum gerir ráð fyrir. Við verðum að hafa í huga þann fjölda rannsókna, álit fagaðila og stofnana á borð við Alþjóðaheilbrigðisstofnunina, sem eru allar á einn veg; að aukið aðgengi leiði til aukinnar neyslu, og verðum því að vera í stakk búin til að auka fræðslu og forvarnir.

Virðulegi forseti, og með leyfi virðulegs forseta, segir í greinargerð með frumvarpinu:

„Lagt er til að smærri áfengisframleiðendum, sem uppfylla ákveðin skilyrði laganna, verði gert kleift að selja áfengt öl í smásölu á framleiðslustað. Frumvarpinu er þannig ætlað að styðja við smærri brugghús, sérstaklega á landsbyggðinni, en umtalsverð gróska hefur verið hérlendis í bruggun áfengs öls á síðastliðnum árum.“

Ég vildi koma hingað upp til að leggja áherslu á mikilvægi þess að í meðförum þingnefndarinnar sem fer með málið verði horft til þess að ekki sé með nokkrum hætti hægt að víkka út þann tilgang sem liggur til grundvallar þessu frumvarpi, verði það að lögum, allt í þágu lýðheilsusjónarmiða.