152. löggjafarþing — 80. fundur,  24. maí 2022.

áfengislög.

596. mál
[20:39]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir að leggja fram þetta frumvarp. Ég, eins og kannski fleiri í þessum sal, tel að það módel sem er í áfengissölu í dag sé barn síns tíma og að þar mætti rýmka um. Þetta er ánægjuleg breyting, sér í lagi fyrir þá sem framleiða bjór og fyrir aðra framleiðslu víða um land, en við höfum einmitt séð mikla nýsköpun á því sviði þar sem lítil brugghús hafa orðið til, og mörg hver búa til ansi góða vöru, jafnvel áfengislausan bjór sem í dag er orðinn að sumra mati jafn góður og áfengur bjór. Það er að sjálfsögðu mikilvægt að tryggja lýðheilsumarkmið og horfa á það að takmarka aðgang ungs fólks að áfengi en ég held að við séum komin með margra áratuga reynslu í því að sporna við kaupum barna á áfengi. Það er jú líka þannig að ef við verðum með þetta enn strangara en það er í dag þá lendum við jafnvel í því að þau fara að drekka einhvern óþverra eða leita í eitthvað sterkara. Ég held því að þetta sé af hinu góða og muni leiða af sér góða breytingu. Það eina sem ég vil hvetja hv. allsherjar- og menntamálanefnd til að skoða er hvort þessi tala, 500.000 lítrar af áfengi á almanaksári, sé rétt viðmið varðandi magn. Það er hægt að skoða þá sem framleiða og fá gögn frá þeim til að átta sig á því. Við erum ekki að tala um þá sem framleiða margar milljónir lítra af áfengi, en eru 500.000 rétta talan? Það væri athyglisvert fyrir nefndina að skoða það.

Svo er í 5. gr. talað um helgidaga þjóðkirkjunnar. Það er kannski líka svolítið barn síns tíma að loka alltaf öllu á þeim dögum, t.d. að vera með allt lokað á sunnudögum. Ég komst að því um daginn að það er víst eitthvað opið á sunnudögum og það kom mér mjög á óvart. En vonandi er þetta fyrsta skrefið í því að við finnum fyrir meira frjálslyndi á þessum markaði og kannski að við sjáum að þetta gangi vel. Þá getum við treyst því að við getum fjarlægt orðin „á framleiðslustað“ og sagt að áfengi sé hægt að selja í verslunum.